Auðveldara að sigla Baldri til Eyja 4. október 2011 06:00 Skipið hefur verið notað í stað Herjólfs undanfarið. Skip eins og Baldur myndi henta vel til siglinga í Landeyjahöfn. fréttablaðið/pjetur
Ferjan Baldur myndi henta vel til áframhaldandi siglinga í Landeyjahöfn. Ferjan hefur undanfarinn mánuð siglt til Vestmannaeyja. „Skipið hefur reynst mjög vel og uppfyllt allar þær væntingar og viðmiðunarmörk sem Siglingastofnun setti á sínum tíma um ölduhæð,“ segir Gísli Viggósson, forstöðumaður rannsókna- og þróunarsviðs Siglingastofnunar. Baldur hefur siglt í 3,6 metra ölduhæð en Herjólfur siglir í allt að 2,5 metra ölduhæð. „Þar að auki ristir Baldur ekki nema 2,7 metra en Herjólfur 4,3,“ segir Gísli. Því þurfi mun minna viðhald við Landeyjahöfn þegar grunnristara skip sigli þangað. Sökum þess að Herjólfur getur ekki siglt í meira en 2,5 metra ölduhæð má gera ráð fyrir að frátafir yfir vetrartímann séu tuttugu til fjörutíu prósent, aðeins vegna of mikillar ölduhæðar. Þá yrðu væntanlega einhverjar tafir vegna dýpkunar. Miklu minni tafir yrðu af notkun Baldurs. Herjólfur er nýkominn úr slipp og þarf á næstunni að sigla milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar, þar sem ekki er nægilegt dýpi fyrir skipið í Landeyjahöfn. - þeb
Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira