Gæti hafa verið blekktur með staðdeyfilyfi 7. september 2011 08:00 Þung refsing liggur við því að flytja til landsins e-töflur.
Sautján ára piltur sem tekinn var með 30 þúsund e-töflur í farangri sínum í Leifsstöð fyrir tæpum tveimur vikum reyndist einnig hafa í fórum sínum tvö kíló af staðdeyfilyfinu líkódíni. Þetta hefur efnagreining leitt í ljós. Pilturinn var handtekinn við komuna til landsins frá Kaupmannahöfn aðfaranótt 24. ágúst. E-töflurnar fundust í farangri hans, ásamt fimm kílóum af duftefnum sem reyndust ekki vera ólögleg fíkniefni. Efnagreining hefur nú leitt í ljós að þar var um að ræða þrjú kíló af alkóhólsykri, sem er alþekkt íblöndunarefni til að drýgja fíkniefni, og tvö kíló af staðdeyfilyfinu líkódíni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum er verið að skoða þann möguleika að pilturinn hafi verið blekktur í fíkniefnaviðskiptunum, enda svipar líkódíni mjög til kókaíns og gefur jafnvel oft jákvæða svörun í sérstökum kókaínprófum. Reynist það raunin, að pilturinn hafi haldið sig vera að flytja inn kókaín, getur það haft talsverð áhrif á refsingu hans. Að öðrum kosti varðar innflutningurinn við lyfjalög, enda er ekki hverjum sem er heimilt að flytja inn staðdeyfilyf í miklu magni. Pilturinn hefur lítið viljað tjá sig um aðdraganda málsins í yfirheyrslum hjá lögreglu. Ljóst þykir að sautján ára unglingur hafi ekki getað fjármagnað kaup á þessu magni fíkniefna og því beinist rannsóknin að því að finna vitorðsmenn hans eða þá sem fengu hann til verksins. Það hefur ekki enn borið árangur. Gæsluvarðhald yfir piltinum rennur út í dag. Að öllum líkindum verður krafist framlengingar á því. - sh
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira