Áfallahjálp í Office 1 vegna verslunarstjóra 7. september 2011 07:00 Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Egilson ehf., sem rekur Office 1, segir mikinn og þungbæran trúnaðarbrest hafa orðið þegar verslunarstjóri til margra ára varð uppvís að stórþjófnaði.Fréttablaðið/Hörður „
Þetta er hálfpartinn eins og að takast á við dauðsfall í fjölskyldunni,“ lýsir Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Office 1, áhrifum þess að samstarfsmaður til margra ára var rekinn vegna stórfellds þjófnaðar. Tveir verslunarstjórar hjá Office 1 hafa verið látnir hætta á þessu ári vegna þess að þeir stálu samtals tugmilljónum króna frá fyrirtækinu að sögn Kjartans. Annar þeirra hefur viðurkennt þjófnað en hinn segist saklaus. Bæði þessi mál voru kærð til lögreglu þar sem þau eru í rannsókn. Að sögn forstjórans er í öðru tilfellinu um að ræða mjög alvarleg auðgunarbrot. Í því máli liggi játningin fyrir. „Það var svo mikill vinur og félagi starfsfólksins að þegar það mál kom upp þá varð að kalla til sálfræðinga. Þegar svona mikill trúnaðarbrestur verður milli einstaklinga getur það haft miklu víðtækari áhrif en að starfsmanni sé einfaldlega sagt upp og lífið haldi áfram eins og frá var horfið,“ segir Kjartan, sem eins og fyrr kemur fram lýsir áhrifunum eins og andláti innan fjölskyldu. Kjartan segir miklu hafa verið breytt hjá fyrirtækinu í kjölfar þjófnaðarmálanna „Við erum búin að setja upp mjög öflugt öryggismyndavélakerfi sem er með sívöktun starfsmanna,“ segir forstjórinn, sem kveður starfsmenn einnig hafa verið senda á námskeið um þessi mál. Eftir að verslunarstjórarnir voru látnir taka pokana sína var næturverði sagt upp störfum vegna þjófnaðar. Næturvörðurinn viðurkenndi með skriflegri yfirlýsingu að hann hefði stolið iPod-hátalara að verðmæti 27.900 krónur og samþykkti að hætta strax og afsala sér ógreiddum launum. Kjartan skýrði öðrum starfsmönnum frá aðdragandanum að brotthvarfi næturvarðarins með fjöldapósti. Það kærði næturvörðurinn til Persónuverndar. Sagði hann meðal annars að þjófnaðurinn væri ósannaður „Þetta er mjög óþægileg staða fyrir mig,“ sagði í kæru næturvarðarins. Persónuvernd úrskurðaði að útsending fjöldapóstsins hefði verið óheimil. Kjartan segist vitanlega munu taka mið af niðurstöðunni en honum finnist þó umhugsunarvert að samkvæmt úrskurðinum hafi verið heimilt að upplýsa alla starfsmenn um málið á starfsmannafundi en ekki með tölvupósti. gar@frettabladid.is
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira