Kvarta undan kjötskorti 30. ágúst 2011 11:00 Eigandi Argentínu vill geta flutt inn þær steikur sem vantar upp á. Fréttablaðið/arnþór
Dýrara er að leysa út kíló af kjúklingi á úthlutuðum WTO-kvóta úr tolli en ef kjötið væri afgreitt með almennum tolli án kvóta. Þetta gengur þvert á markmið samnings Íslands og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um innflutning á matvælum. Veitingamenn kvarta undan skorti á kjúklinga- og nautakjöti, til dæmis veitingahúsakeðjan Subway, sem getur ekki lengur haft staðlaðar kjúklingabringur á matseðlinum. Innlendir framleiðendur geta ekki framleitt bringurnar og því þarf að flytja þær inn. Það er hins vegar of dýrt sökum hárra tolla, að sögn Gunnars Skúla Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Subway. Hann segir jafnframt óhagstæðara að flytja inn kjúklingabringur á úthlutuðum kvóta heldur en ef kjúklingabringurnar væru tollafgreiddar með almennum tolli utan kvóta. „Þetta reiknuðu tollayfirvöld út fyrir okkur,“ segir Gunnar. „Við tókum út sex kíló úr 1.500 kílóa sendingu sem við getum ekki leyst út til þess að láta reyna á útreikninginn, sem sýnir svart á hvítu hvers konar rugl þetta er. Tollafgreiðsla á þessum sex kílóum samkvæmt almennum tolli, sem er í raun ofurtollur, kostar 10.109 krónur. Samkvæmt WTO-tollkvótanum, sem við fengum úthlutað í júní, kostar tollafgreiðsla þessara 6 kílóa 12.504 krónur. Menn flytja ekkert inn á þessum tolli,“ segir Gunnar og bætir því við að íslenskt kjúklingakjöt sé notað í aðra kjúklingarétti Subway. Veitingahúsið Argentína steikhús hefur líka þurft hafa að taka rétti af matseðli vegna skorts á grillsteikum. „Við fórum að finna fyrir skorti á fitusprengdu kjöti fyrir um ári og þetta hefur versnað jafnt og þétt. Þetta hefur verið sérlega erfitt í sumar,“ segir Kristján Sigfússon, eigandi Argentínu. Hann kveðst vera í viðskiptum við kjötverkanda sem eigi í basli með að uppfylla kröfur veitingastaðarins. „Hann fær ekki nógu marga gripi því að er ekki framleitt nóg. Hann vantar í hverri viku þrjátíu til fjörutíu prósentum fleiri gripi en hann fær. Þetta virðist ganga í hæðum og lægðum hjá nautgripabændum. Þessar sveiflur eru allt of miklar og við óskum eftir að fá að flytja inn þær steikur sem vantar upp á.“ Kristján getur þess að verðið hækki þegar framboðið sé lítið. „Maður fær lakara kjöt á hærra verði en því sem maður keypti góða kjötið á fyrir tveimur árum.“
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira