Reyna við Íslandsmet í planki 26. ágúst 2011 10:15 Hér planka þau saman, eins og glaðlegir kópar á steini, þau Daði Þór Einarsson, skipuleggjandi hátíðarinnar Í túninu heima, Sigríður Dögg Auðunsdóttir kynningarstjóri og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. fréttablaðið/gva „
Maður er allur endurnærður eftir gott plank, og tilfinningin eftir að hafa sett fjöldamet í planki verður örugglega sæt því samstaðan sem skapast þegar margir gera sama hlutinn er svo skemmtileg," segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, forstöðumaður kynningarmála hjá Mosfellsbæ, þar sem reynt verður að setja Íslandsmet í planki við setningu bæjarhátíðarinnar Í túninu heima á Miðbæjartorginu í kvöld klukkan 20. Plank varð áberandi í byrjun árs, en í plankastellingu er lagst á magann og teygt úr sér svo maður verði eins og þráðbein spýta, andlitið snýr niður og handleggir liggja með síðum. „Á Miðbæjartorginu er fínasti plankveggur þar sem hægt verður að raða niður plankandi fólki. Plank hentar öllum og er alls ekki erfitt á veggnum góða. Því verður spennandi að sjá hvort nokkur hundruð mæta til að planka saman, eða jafnvel þúsundir, en þá flokkast það eflaust undir óstaðfest heimsmet," segir Sigríður Dögg og hvetur landsmenn alla til að eyða fögru ágústkvöldi með Mosfellingum í einstakri og skemmtilegri afrekstilraun. „Bæjarstjórinn plankar vitaskuld fremstur í flokki enda í fanta plankaformi eftir að vera búinn að hita vel upp með magaæfingum í hádegispásunum undanfarið," segir Sigríður Dögg galvösk. Eftir Íslandsmet í fjöldaplanki verður gengið fylktu liði í Ullarnesbrekkur þar sem kveiktur verður varðeldur og sunginn brekkusöngur. Sjá nánar um dagskrá bæjarhátíðarinnar á mosfellsbaer.is- þlg
Skoðanir Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira