Vilja ekki hreindýrin vestur 19. júlí 2011 08:00 Dýraverndunarsamband Íslands telur Vestfirði ekki vel tilfallna fyrir hreindýr og leggst eindregið gegn hugmyndum um að flytja þau þangað. Mynd/Vilhelm
Dýraverndunarsamband Íslands leggst eindregið gegn áformum áhugahóps Vestfirðinga um að flytja hreindýr til Vestfjarða. Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að hópurinn væri að kanna möguleika á að flytja tuttugu til fimmtíu hreindýr vestur en yfirdýralæknir er einnig mótfallinn þeim áformum, sérstaklega vegna hugsanlegrar hættu á að þau beri smit í sauðfé. Í tilkynningu sem Dýraverndarsambandið sendir frá sér í kjölfar þessarar umfjöllunar segir: „Þar er ekki hentugt haglendi fyrir slík dýr sem ætlað er að lifa á algerum útigangi og hvergi er þar að finna kjörlendi sambærilegt því sem hreindýr á Austurlandi njóta. Einnig er bent á að veðurfar þar vestra hentar hreindýrum ekki og ljóst er að velferðar dýranna yrði ekki gætt við þær aðstæður sem þar ríkja.“ Magnús Ólafs Hansson, sem fer fyrir hópi Vestfirðinganna, segir að málið sé á rannsóknarstigi og ef í ljós komi að betur sé heima setið en af stað farið með þetta verkefni muni hópurinn láta af þessum hugmyndum. Hann segir enn fremur að hópurinn hafi fengið álit hjá sænska yfirdýralæknisembættinu og þar segir að hreindýr geti ekki smitað sauðfé af riðu eða garnaveiki. - jse
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira