Ríkisstjórnin sögð beita Alþingi ofbeldi 8. júní 2011 07:00 Þingstjórn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur var gagnrýnd á þingi í gær og beðið um frestun ýmissa mála. Þá lá Jón Bjarnason undir ámæli fyrir að leggja fram frumvörp tæpum tveimur mánuðum eftir að frestur til þess rann út.fréttablaðið/Anton
Hörð gagnrýni kom fram á starfshætti Alþingis við umræður í gær. Gagnrýnin var nokkuð kunnugleg; allt of mörg mikilvæg mál kæmu of seint fram og ætlast væri til þess að þingmenn afgreiddu þau í flýti. Athygli vakti að stjórnarþingmaður tók undir gagnrýnina. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hófu gagnrýnina. Ragnheiður gagnrýndi að þingfundur hæfist á meðan sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd væri enn að störfum, en þar var fjallað um kvótafrumvarpið hið minna. Sigurður á sæti í nefndinni og hann sakaði framkvæmdarvaldið um ofbeldi gagnvart Alþingi. Ríkisstjórnin liti á þingið sem afgreiðslustofnun. Undir þessa gagnrýni tóku fleiri stjórnarandstæðingar og sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, allt tal um vandaðri vinnubrögð þingsins vera öfugmæli og hræsni. Stjórnarandstæðingar tiltóku sérstaklega frumvörp sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistjórnun, enda hefðu þau komið á dagskrá Alþingis um það bil tveimur mánuðum eftir að framlagningarfrestur var úti. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði þetta brjóta gegn markmiðum sem þingið setti sér síðast þegar gerðar voru breytingar á reglum um störf þingsins. „Það má ekki verða fordæmi að ríkisstjórnin komist upp með að leggja fram frumvörp tveimur mánuðum eftir framlagningarfrest og knýja þingstörf áfram fram á sumar.“ Athygli vakti að Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði þessa gagnrýni réttmæta, þó ekki endilega vegna kvótafrumvarpsins. Valgerður sagði að taka þyrfti starfshætti þingsins til endurskoðunar. Fjöldi mikilvægra mála fengi að fljóta í gegn á síðustu dögum þingsins og þingmenn hefðu hvorki tíma né ráðrúm til að leggjast yfir þau. Þetta hefði viðgengist árum saman. „Við ætluðum að breyta þessu en höfum ekkert gert. Nú er kjörtímabilið hálfnað og ég skora á framkvæmdarvaldið að koma með mál fyrr inn í þingið til að við höfum tíma til að gaumgæfa þau,“ sagði Valgerður. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira