Kollvarpa hefðbundnum skýringum á landnámi Íslands 4. júní 2011 09:00 Bjarni F. Einarsson. Fornleifarannsóknir í Höfnum á Reykjanesi gefa til kynna að menn hafi vanið komur sínar til Íslands fyrir árið 870 og nýtt sér gæði landsins hluta úr ári. Fornleifafræðingur segir fyrri kenningar þegar vera fallnar.
Fornleifarannsóknir á mannvistarleifum í Höfnum á Reykjanesi benda til þess að þar sé fundinn skáli sem hafi verið byggður talsvert fyrir hið hefðbundna landnám undir lok níundu aldar. Fornleifafræðingur telur að í skálanum felist nánari skýring á ástæðum þess að landnámsmenn settust að á Íslandi. Byggðasafn Reykjanesbæjar og Fornleifafræðistofan standa að rannsóknum við Kirkjuvogskirkju, sem hófust árið 2009. Þá var um það bil fjórðungur skálans grafinn upp og benti margt til þess að um merkilegan fund hafi verið að ræða, segir dr. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur í samtali við Fréttablaðið en hann stýrir rannsókninni. „Þegar skáli finnst á Íslandi er að öllu jöfnu gengið út frá því að þar sé um venjulegan bóndabæ að ræða en þá verða að vera fleiri byggingar í næsta nágrenni, líkt og fjós, smiðja, búr og skemmur og þess háttar. Þrátt fyrir mjög ítarlega leit, bæði með jarðsjá, prufuholum og loftmyndum, finnast engin önnur hús í næsta nágrenni við skálann og þá veltir maður því fyrir sér hverslags byggingu er um að ræða." Bjarni bætir því við að niðurstöður kolefnisaldursgreiningar gefi nú til kynna að skálinn hafi verið yfirgefinn á árabilinu 770 til 880, sem gefi tilefni til að áætla að hann hafi verið byggður fyrir hið „sagnfræðilega landnám" sem er jafnan miðað við árið 874.Fornleifafræðingurinn Bjarni F. Einarsson telur skálann í Höfnum benda til þess að þróun landnáms hafi verið með öðrum hætti en sögubækur segja til um.Mynd/Bjarni F. Einarsson„Mín vinnukenning er sú að um sé að ræða útstöð frá Norður-Evrópu, Skandinavíu eða bresku eyjunum, þar sem menn komu hingað í þeim erindagjörðum að nýta sér þær auðlindir sem hér var að finna, til dæmis bjargfugl og egg, fisk, hvalreka, og ekki síst rostungstennur." Bjarni segir þetta kollvarpa hefðbundnum skýringum á landnámi Íslands. „Þannig hefur búseta á Íslandi þróast úr því að vera útstöð hluta úr árinu yfir að endanlegu landnámi. Það kemur í stað þess að ímynda sér síðhærðan, reiðan kóng í Noregi sem rak höfðingja í burtu til Íslands. Það er hreinasti tilbúningur og rómantísering á upphafi okkar, til að réttlæta Íslendinga sem hluta af efri stétt Skandinava." Bjarni bætir við að þó að ljóst sé að gamlar „kreddukenningar" um upphaf Íslandsbyggðar séu fallnar að hans mati, eigi aðrar kenningar erfitt með að rata inn í sögubækur vegna hinnar eðlislægu íhaldssemi sagnahyggjunnar. Rannsóknum í Höfnum er þó ekki að öllu lokið þar sem nú stendur yfir uppgröftur á miðhluta skálans og lokahnykkurinn verður næsta sumar.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Erlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Spá allt að fjörutíu stiga hita Erlent Trump undirritaði samkomulag við Írani Erlent Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Erlent Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Slagsmál brutust út eftir árekstur Rubio óskar Íslendingum til hamingju með daginn Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun Sjá meira
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent