Innlent

Erlend útgáfa skuldabréfa er í bígerð

Sérfræðingar Greiningar Íslandsbanka telja að ríkið muni á árinu gefa út skuldabréf til að standa straum af gjalddögum eldri bréfa. Fréttablaðið/GVA
Sérfræðingar Greiningar Íslandsbanka telja að ríkið muni á árinu gefa út skuldabréf til að standa straum af gjalddögum eldri bréfa. Fréttablaðið/GVA
Ríkissjóður undirbýr fyrstu erlendu skuldabréf sín á markaði frá árinu 2006. Að mati Greiningar Íslandsbanka er líklegt að ráðist verði í útgáfuna í haust og að miðað sé við að gefa út skuldabréf á árinu fyrir 500 milljónir evra. Upphæðin jafngildir 82,5 milljörðum króna.

„Hagfelld þróun Icesave-málsins og nýlegar ákvarðanir matsfyrirtækja að lækka ekki lánshæfi ríkissjóðs í erlendri mynt eru lykillinn að þessari útgáfu,“ segir í umfjöllun Greiningar í gær. Vísað er til þess að fréttaveita Reuters hafi haft eftir einum af umsjónaraðilum væntanlegrar útgáfu að verið væri að skipuleggja fundaröð með fjárfestum á næstu vikum vegna útgáfunnar. „Erlendu bankarnir Barclays Capital, Citigroup og UBS verða umsjónaraðilar með útgáfunni.“

Bent er á það í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka að á næstu tólf mánuðum séu á gjalddaga tveir skuldabréfaflokkar ríkissjóðs í evrum, samtals 454 milljónir evra. „Líklegt er að ríkissjóður hafi hug á því að hin nýja útgáfa muni að minnsta kosti nægja til endurfjármögnunar á framangreindri fjárhæð, enda þarf að öðrum kosti að taka þá fjármuni út úr gjaldeyrisforða Seðlabankans.“

- óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×