Fjögur aðildarfélög BSRB náð samningi 1. júní 2011 06:15 Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir að hreyfing hafi komið á samingaviðræður opinberra starfsmanna eftir að ASÍ og SA náðu saman. Mynd/Bára Kristinsdottir
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir viðræður vegna kjarasamninga ganga vel og hafa fjögur aðildarfélög bandalagsins náð samkomulagi við viðsemjendur sína á síðustu dögum. Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, og SFR, stéttarfélag í almannaþjónustu, skrifuðu undir samninga við ríkið og Samflot, samtök bæjarstarfsmannafélaga, samdi við samninganefnd sveitarfélaga. Þá sömdu flugumferðastjórar við Isavia og aflýstu með því öllum verkfallsaðgerðum, en þar hafði verið yfirvinnubann í gildi um nokkra hríð. Þrír fyrstnefndu samningarnir eru á svipuðum nótum og stóru samningarnir sem tókust milli ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. Um það bil helmingurinn af vinnumarkaðinum féll undir þá samninga og Elín Björg segir að með þeim hafi hlutirnir farið að hreyfast. „Um leið og þeir voru frágengnir fóru steinarnir að losna úr stíflunni og nú er kominn góður skriður á þessi mál." Hún bætti því við að bréf sem BSRB barst nýlega frá ríkisstjórninni, þar sem tíunduð var afstaða stjórnvalda gagnvart kjarasamningum opinberra starfsmanna, hafi einnig liðkað fyrir samningsferlinu. Þar var meðal annars lögð áhersla á að eyða kynbundnum launamun og vinna í lífeyrissjóðsmálum. Elín Björg telur að dregið geti til tíðinda á næstunni, en þó sé ekki enn farið að sjá fyrir endann á samningahrinunni. „Enn eiga 23 félög eftir að semja og þar af eru sum félög með marga samninga, þannig að það er mikið eftir enn. Það er hins vegar góður gangur á þessu og ásetningur til að landa samningum," segir Elín.Magnús PéturssonMagnús Pétursson ríkissáttasemjari segir í samtali við Fréttablaðið að mikill erill sé í húsakynnum hans þessa dagana. Þar voru til dæmis fulltrúar Starfsgreinasambandsins, SFR, BHM og hjúkrunarfræðingar við samninga í gær. Samiðn og Rafiðnaðarsamband Íslands náðu saman í gær. „Þetta er að vinnast ágætlega og það er fullt í öllum okkar sölum og rúmlega það þessa dagana." Magnús segir þó að margt sé enn óunnið enda séu liðlega 300 kjarasamningar í landinu. „En þessu miðar öllu vel og það er hugur í fólki að halda áfram." thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Sjá meira