Öryrkjum fjölgar hægar 28. maí 2011 08:30 Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri TR. Öryrkjum fjölgaði um 200 milli 2009 og 2010. Hefur fjölgað um 400 til 800 á ári um langt skeið. Úrræði hafa tryggt endurhæfingu og virkni. Tryggja verður að ekki verið vikið af þessari braut segir forstjóri TR.
Öryrkjum fjölgaði mun hægar í fyrra en árin á undan. Þetta er þvert á allar spár um mikla fjölgun öryrkja í kjölfar efnahagshruns og aukins atvinnuleysis. Hlutfallsleg aukning milli áranna 2009 og 2010 var aðeins 1,4 prósent, eða um 200 manns, í stað aukningar um 400 til 800 á ári um langt skeið. Skýringuna er líklegast að finna í aðgerðum stjórnvalda undanfarin ár, að sögn Sigríðar Lillýjar Baldursdóttur, forstjóra Tryggingastofnunar. „Stjórnvöld hafa gripið til margvíslegra úrræða til þess að tryggja betur endurhæfingu og virkni í kjölfar atvinnumissis og heilsubrests. Atvinnuleysisbætur hafa til dæmis verið hækkaðar og fólk getur verið lengur á bótum en áður,“ bendir Sigríður Lillý á. Hún er jafnframt þeirrar skoðunar að Vinnumálastofnun hafi frá bankahruni unnið þrekvirki við að halda uppi virkni atvinnulausra með margvíslegu uppbyggilegu starfi. „Í Tryggingastofnun höfum við svo endurskoðað öll okkar vinnubrögð varðandi endurhæfingarmat, virk endurhæfingarúrræði og örorkumat að fengnum lagabreytingum sem gerðu okkur það kleift.“ Sigríður Lillý segir ekkert benda til breytinga á fækkun öryrkja það sem af er þessu ári. „En auðvitað veit maður ekki hvað gerist. Það þarf að fylgjast vel með þessari þróun, ekki bara í örorkumálunum, heldur einnig atvinnulífinu. Það þarf að lesa þetta saman og skoða hvað við höfum gert vel svo að við víkjum ekki út af þessari braut.“ Fjöldi öryrkja í desember síðastliðnum var 14.714. Konur voru í meirihluta eða 9.025. Örorkuþegum hefur fjölgað ár hvert en nokkuð mismunandi eftir tímabilum. Fyrri hluta tíunda áratugarins var fjölgunin hvað mest hlutfallslega og náði hámarki 1993 þegar hún var 11,5 prósent milli ára. „Með minnkandi atvinnuleysi hægði nokkuð á þessari þróun þar til 1999 þegar fór í sama farið. Aukningin eftir það var hvað mest fram til ársins 2005,“ greinir Sigríður Lillý frá. - ibs
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira