Flestir vilja kvótann í ríkiseigu 27. maí 2011 05:00 Mynd/Getty Images-Nordic Photos
Litlar breytingar hafa orðið á afstöðu almennings til mögulegra breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu samkvæmt könnun MMR. Ríflega tveir þriðju landsmanna, 67,5 prósent, vilja að kvótinn verði í eigu ríkisins. Þetta er örlítið hærra hlutfall en í sambærilegri könnun MMR sem gerð var í febrúar síðastliðnum. Þá sögðust 66,6 prósent þeirrar skoðunar. Svipað hlutfall, 71,4 prósent, segist vilja að þeir sem fái úthlutað kvóta eigi að greiða leigu til ríkisins sem endurspegli markaðsverðmæti kvótans. Mun færri, um 20,8 prósent, vilja að þeir sem fái úthlutað kvóta greiði leigu sem nemur rekstarkostnaði þeirra ríkisstofnana sem þjónusta sjávarútveginn. Hlutfallslega fáir, um 15,6 prósent, segjast vilja að núverandi handhafar kvótans eigi að fá að halda honum óskertum. Enn færri, eða um 10,1 prósent, vilja að þeir sem fá úthlutað kvóta eigi að fá að ráðstafa honum að vild, þar með talið að selja hann, leigja og veðsetja. Talsverður munur var á afstöðu fólks eftir því hvaða flokk það sagðist styðja. Stuðningsmenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna eru hlynntari því að kvótinn verði í eigu ríkisins en stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Könnun MMR var gerð dagana 9. til 12. maí. Alls tóku 837 einstaklingar á aldrinum 18 til 67 ára þátt í könnuninni. Þátttakendur endurspegluðu lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar. Afstöðu tóku á bilinu 73,7 til 82,2 prósent, misjafnt eftir spurningum. - bj
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira