Ríkissaksóknari útvistar sakamáli til Valtýs 28. maí 2011 08:30 Valtýr Sigurðsson. Mál tekið af efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra vegna óvissu um skipan ákæruvalds á næstunni:
Valtýr Sigurðsson, lögmaður hjá LEX og fyrrverandi ríkissaksóknari, hefur verið fenginn til að reka fjárdráttarmál á hendur fyrrverandi yfirmanni hjá Landsbankanum fyrir dómi. Ástæðan sem gefin er upp er óvissan sem ríkir um starfsemi efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, sem áður fór með málið. Málið sem um ræðir er höfðað á hendur Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Landsbankanum, fyrir fjárdrátt. Haukur millifærði 118 milljónir af reikningi aflandsfélags bankans tveimur dögum eftir hrun og inn á eigin reikning. Hann hefur alla tíð borið að hafa með þessu reynt að bjarga fjármununum. Haukur var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur en Hæstiréttur vísaði málinu aftur heim í hérað. Málflutning ákæruvaldsins fyrir Hæstarétti annaðist Valtýr Sigurðsson, þá ríkissaksóknari, enda hefur embætti Ríkissaksóknara eitt rétt til þess. Þegar málareksturinn hófst síðan á nýjan leik fyrir héraðsdómi í lok apríl sótti það Alda Hrönn Jóhannsdóttir, settur saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra. Mánuði síðar nýtti nýr ríkissaksóknari, Sigríður J. Friðjónsdóttir, sér heimild í lögum til að taka svipta efnahagsbrotadeildina forræði á saksókninni og taka hana í sínar hendur. Hún fól Valtý það síðan í kjölfarið. Hann var þá horfinn til starfa á LEX en þekkti málið. Þetta er rökstutt með því að óvissa ríki um skipan ákæruvaldsins þegar aðalmeðferðin er áætluð, vegna fyrirhugaðrar sameiningar embætta efnahagsbrotadeildar og sérstaks saksóknara. Embættin sameinast formlega 1. júní. - sh
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fleiri fréttir Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði Sjá meira