Ekki hægt að mæta öllum óskum 14. apríl 2011 06:30 Börn að leik Sjálfstæðismenn í menntaráði eru mjög óánægðir með fyrirhugaðar breytingar.Fréttablaðið/gva
Meirihlutinn í menntaráði og íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar leggur til nokkrar smávægilegar breytingar á tillögum Besta flokksins og Samfylkingarinnar um fyrirkomulag skóla- og frístundamála í borginni í umsögnum sínum um málið. Í yfirlýsingu meirihlutans eru breytingartillögurnar sagðar taka mið af umsögnum foreldra og fagaðila, sem langflestar voru mjög neikvæðar í garð fyrirhugaðra breytinga. Meirihlutinn leggur til að nokkrum sameiningum skóla og leikskóla verði frestað til áramóta og sums staðar enn lengur. Horfið verði frá stöku sameiningum sem ekki þykja forsendur fyrir við nánari athugun og enn annars staðar verði haft nánara samráð en verið hefur við hagsmunaaðila áður en gengið verði frá ákvörðunum. Blásið verður til vinnufunda í öllum hverfum í vor með foreldrum og starfsfólki um frekari sparnað. Ekki sé hins vegar hægt að koma til móts við allar óskir vegna knapprar stöðu borgarsjóðs. Meirihlutinn segir áætlað að breytingarnar skili eins milljarðs króna sparnaði á þremur og hálfu ári, þar af 300 milljónum árið 2012. Öllum leikskólastarfsmönnum sem missi vinnuna verði boðið starf. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í menntaráði lögðu fram bókun á fundi ráðsins í gær þar sem þeir hörmuðu að meirihlutinn ætlaði „að berja höfðinu við steininn“ og fara í breytingarnar þrátt fyrir hávær mótmæli. Ávinningurinn af þeim væri lítill og hætta á að þær sköpuðu frekari óróa og ótta. - sh
Mest lesið Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Innlent Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Erlent Fleiri fréttir Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Sjá meira