Jafnmargir hlynntir og andvígir hernaði 12. apríl 2011 07:00
Svipað hlutfall landsmanna styður hernaðaríhlutun aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Líbíu og er andvígt hernaðinum, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Alls sögðust 38,8 prósent mjög eða frekar hlynnt hernaðaraðgerðunum en 36,5 prósent segjast mjög eða frekar andvíg. Um 24,7 prósent segjast hvorki hlynnt né andvíg. Karlar virðast samkvæmt könnuninni talsvert herskárri en konur. Alls sögðust 44,8 prósent karla mjög eða frekar hlynnt hernaðaraðgerðum í Líbíu en 32,3 prósent kvenna. Talsverður munur var á afstöðu fólks til hernaðaraðgerða NATO eftir því hvaða stjórnmálaflokk viðkomandi sagðist myndu kjósa yrði gengið til þingkosninga nú. Alls sögðust ríflega 48 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hlynnt hernaðaraðgerðunum. Heldur fleiri sjálfstæðismenn sögðust andvígir hernaðinum, alls ríflega 27 prósent samanborið við 21 prósent framsóknarmanna. Um 38 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar segjast hlynnt hernaðaraðgerðum NATO í Líbíu. Örlítið fleiri, eða um 41 prósent, segjast andvíg aðgerðunum. Um 28 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna styðja hernaðaraðgerðirnar, en meirihluti stuðningsmanna flokksins, ríflega 57 prósent, er andvígur hernaðinum. Hjá þeim hópi sem ekki tók afstöðu til stjórnmálaflokka voru um 35 prósent hlynnt hernaðinum en 37 prósent andvíg. Hringt var í 800 manns dagana 5. og 6. apríl. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá og skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú hernaðaraðgerðum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í Líbíu? Alls tóku 79,7 prósent afstöðu. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira