Hópur fjárfesta kaupir MP Banka 12. apríl 2011 06:00 helstu stjórnendur MP Banka Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri MP Banka, fór yfir aðdraganda að eigendaskiptum í gær. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur verið ráðinn stjórnarformaður. Skúli Mogensen, sá eini sem stendur, segir búið að hreinsa áhættueignir út úr nýjum banka. Fréttablaðið/Anton „
MP Banki er það lítill að hann þarf ekki að fara út í meiri háttar tiltektir. Hann hefur ekki þegið styrki eða fyrirgreiðslu frá hendi ríkisins. Það finnst mér skipta miklu máli,“ segir fjárfestirinn Skúli Mogensen, aðaleigandi MP Banka. Hann fór yfir aðkomu nýrra fjárfesta að MP Banka í höfuðstöðvum hans í gær, sama dag og kaupin voru innsigluð. Þar kom meðal annars fram að stefnt er að skráningu bankans á markað innan þriggja ára. MP banki uppfyllti ekki skilyrði Fjármálaeftirlitsins um eigið fé um síðustu áramót og fékk hann frest til að bæta úr því. Nýir fjárfestar hafa lagt 5,5 milljarða króna til bankans og fór eiginfjárhlutfall hans við það í 24 prósent. Í fjárfestahópnum er Skúli umsvifamestur með 17,45 prósenta hlut sem metinn er á 965 milljónir króna. Lífeyrissjóður verzlunarmanna er næstur á eftir með 8,9 prósenta hlut. Á meðal annarra stórra fjárfesta eru systkinin Guðmundur og Berglind Jónsbörn kennd við útgerðarfélagið Sjóla í Hafnarfirði. Þá lagði Einar Sveinsson, fyrrverandi stjórnarformaður Glitnis og stjórnarformaður N1, fram hundrað milljónir króna í skiptum fyrir 1,8 prósenta hlut. Þessu til viðbótar eiga erlendir fjárfestar tæpan 23 prósenta hlut. Þeirra stærstir með hvor sinn 9,64 prósenta hlutinn eru Joe Lewis, eigandi breska knattspyrnuliðsins Tottenham, og Rowland-fjölskyldan. Hún keypti banka Kaupþings í Lúxemborg af skilanefnd bankans um mitt ár 2009. Lewis var jafnframt viðskiptavinur Kaupþings í Bretlandi. Skúli sagði að þótt fjárfestarnir erlendu hafi allir þekkt Íslendinga þá hafi þurft að freista þeirra til að fjárfesta hér. Kaupin fóru þannig fram að fjárfestarnir keyptu dótturfélag MP Banka ásamt ákveðnum eignum, þar á meðal starfsemi í Litháen. Annað var skilið eftir í félagi fyrri eigenda MP Banka, Austurbraut. Þar á meðal eru áhættusamar eignir og rekstur í vesturhluta Rúmeníu. Nokkur mál standa óuppgerð eftir bankahrunið, þar á meðal Exeter-málið svokallaða. Verði niðurstaðan MP Banka ekki í hag falla allar skuldbindingar á herðar Austurbrautar. „Áhættan er farin úr MP Banka. Það er lykilatriði,“ segir Skúli. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira