Fréttaskýring: Eftirlitsstofnun bíður svars Íslands við áminningarbréfi 12. apríl 2011 07:00 Áminnt Íslensk stjórnvöld frestuðu því að svara áminningarbréfi eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave þar sem til stóð að semja um málið. Nú þegar samningarnir hafa verið felldir þarf að svara áminningarbréfinu.Fréttablaðið/GVA
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fullyrðir að ESA hafi ekkert sagt um Icesave sem mark sé á takandi. Frumniðurstöður ESA eru þegar komnar fram og eru þvert á fullyrðingar íslenskra stjórnvalda. Hvað hefur ESA, eftirlitsstofnun EFTA, sagt um Icesave og málstað Íslendinga í málinu? Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði ekkert mark takandi á því sem komið hafi frá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, um Icesave-málið hingað til, á blaðamannafundi á sunnudag. Þetta sagði Ólafur þrátt fyrir að ESA hafi sent íslenskum stjórnvöldum áminningarbréf þar sem fram kemur að stofnunin hafi komist að þeirri frumniðurstöðu að Íslandi beri að tryggja greiðslu á lágmarkstryggingu til breskra og hollenskra sparifjáreigenda. „Ég veit ekki betur en að eftirlitsstofnun EFTA eigi eftir að gera málið upp við sig og að eftirlitsstofnun EFTA bíði núna eftir því að fá röksemdir og málflutning Íslendinga. Það væri nú skrýtið ef eftirlitstofnun EFTA færi að gefa einhvern úrskurð eða gefa eitthvað til kynna áður en málflutningur annars aðilans hefði komið fram," sagði Ólafur Ragnar á sunnudag. „Eftirlitsstofnun EFTA hefur bara ekkert sagt um málið enn sem komið er sem mark er á takandi nema það heyrðust einhverjar einkaskoðanir manna hér í umræðunni sem þeir hlupu reyndar frá þegar þeim var bent á að það væri óeðlilegt," sagði Ólafur. ESA sendi þann 26. maí í fyrra áminningarbréf til Íslands vegna Icesave-málsins. Þar kemur fram að ESA hafi komist að þeirri frumniðurstöðu að íslensk stjórnvöld séu skuldbundin til að tryggja greiðslur á lágmarkstryggingu á reikningum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Vísað er til þess í áminningarbréfinu að tilskipun um innstæðutryggingar sé hluti af EES-samningnum. Samkvæmt henni beri Íslandi að greiða hverjum innstæðueiganda ríflega 20 þúsund evrur í kjölfar falls Landsbankans. Íslensk stjórnvöld hafa sett fram þau sjónarmið að nægilegt hafi verið að koma á fót Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjármagnseigenda í samræmi við tilskipunina. Ráði sjóðurinn ekki við að greiða lágmarksinnstæðutryggingu sé það ekki á ábyrgð íslenskra stjórnvalda að greiða mismuninn. Þá hefur ríkisstjórn Íslands haldið því fram að tilskipunin eigi ekki við í algeru efnahagshruni eins og orðið hafi hér á landi. Í áminningarbréfi ESA kemur fram að stofnunin fallist á hvorugt af þessum sjónarmiðum íslenska ríkisins. „Innstæðutryggingartilskipunin tryggir að sparifjáreigendur fái greiddar 20.000 evrur ef banki þeirra verður gjaldþrota. Öll ríki verða að sjá til þess að sparifjáreigendur njóti þeirrar verndar. Hún er nauðsynleg til þess að viðskiptavinir banka geti verið öruggir um sparifé sitt," er haft eftir Per Sanderud, forseta ESA, í tilkynningu sem send var fjölmiðlum eftir að áminningarbréfið var sent íslenskum stjórnvöldum. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira