ESA vísaði til sérlaga um Ríkisútvarpið 9. apríl 2011 07:30 Frá Fjölskyldudegi 365. Norðurljós, forveri 365, kærði fyrir níu árum til ESA ríkisaðstoð handa RÚV. Fréttablaðið/Valli
Í minnisblaði menntamálaráðuneytisins til menntamálanefndar Alþingis kemur fram að eftirlitsstofnun EFTA, ESA, vísi til sérlaga um Ríkisútvarpið ohf. í ákvörðun sinni um stöðu Ríkisútvarpsins (RÚV). Ákvörðun ESA varðar umbætur sem íslenska ríkið á að gera til að skilja á milli samkeppnisreksturs og almannaþjónustu í rekstri RÚV. Í bréfi 365 miðla til menntamálanefndar um mánaðamótin, sem greint var frá í Fréttablaðinu í vikunni, er átalinn seinagangur í umbótum á lagaumhverfi fjölmiðla og talið að ESA vísi til þess að taka eigi á samkeppnisumhverfi í nýjum heildarlögum um fjölmiðla sem í vikunni voru tekin til annarrar umræðu á Alþingi. Skúli Helgason, formaður menntamálanefndar, segir hins vegar ekki óeðlilegt að 365 miðlar hafi misskilið efni ákvörðunar ESA. „Enda hefur félagið ekki í höndum þau bréf og önnur samskipti á milli ESA og íslenskra stjórnvalda sem liggja til grundvallar ákvörðuninni,“ segir hann. Í athugasemd sem menntamálaráðuneytið sendi blaðinu vegna málsins er áréttað að tekið sé á samkeppnismálum í frumvarpi til fjölmiðlalaga í kafla um dreifingu hljóð- og myndefnis. Eðlilegt sé hins vegar að sérstakar takmarkanir eða heimildir til handa RÚV séu í sérlögum um það félag. - óká
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Fleiri fréttir Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Sjá meira