Ámælisvert að hunsa álit ESA 7. apríl 2011 09:00 Fjölmiðlalögin eru sjötta mál á dagskrá Alþingis í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnum þingmanna til ráðherra. Fréttablaðið/Pjetur
Viðbrögð stjórnvalda við áliti ESA, eftirlitsstofnun EFTA, um stöðu Ríkisútvarpsins (RÚV) á fjölmiðlamarkaði eru með eindæmum daufleg, að mati Ara Edwald, forstjóra 365 miðla. „ESA krefst þess að stjórnvöld setji inn í fjölmiðlalögin, ekki bara lög um RÚV, grundvallarreglur sem gæta þarf að varðandi samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði,“ segir hann. Fjölmiðlafrumvarpið verður tekið til annarrar umræðu á Alþingi í dag. Að lokinni fyrstu umræðu gekk frumvarpið til menntamálanefndar en var afgreitt þaðan fyrir rúmri viku, eftir að hafa tekið nokkrum breytingum. Í athugasemdum sem 365 miðlar sendu menntamálanefnd eftir síðustu afgreiðslu hennar á frumvarpinu er átalið að það taki í engu á hlutverki RÚV á auglýsingamarkaði þrátt fyrir að komið hafi fram í umsögnum að óeðlilegt væri „að setja heildstæða löggjöf um fjölmiðla án þess að hún taki á neinn hátt á alvarlegri stöðu samkeppnismála í greininni og úrræðaleysi við brotum“. Með ólíkindum er sagt að nefndarálit meirihlutans víki ekki að ákvörðun ESA frá 9. febrúar síðastliðnum. „Í ákvörðuninni kemur skýrt fram að það verði í fjölmiðlalögunum sjálfum að gefa samkeppni á markaðinum fótfestu, ef koma á í veg fyrir óheilbrigða samkeppni,“ segir í athugasemd 365. Eftir að menntamálanefnd skilaði frumvarpinu til annarrar umræðu sagði Skúli Helgason, formaður nefndarinnar, Fréttablaðinu að tekið yrði á álitamálum tengdum RÚV í frumvarpi til nýrra laga um stofnunina sem leggja ætti fram í næsta mánuði. Sama sagði Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Í umsögn 365 er hins vegar sagt engan veginn nægja að huga að stöðu RÚV á auglýsingamarkaði í sérlögum um RÚV. „Það fer þvert gegn ákvörðun ESA um nauðsyn þess að huga að samkeppnismálum í heildarlöggjöf um fjölmiðlamarkaðinn. Í áliti ESA kemur einnig fram að það sé brýnt að í fjölmiðlalögum verði fundinn farvegur úrlausna í samkeppnismálum til að auka skilvirkni og gagnsæi eftirlits. Til að mæta þeim kröfum ESA væri til að mynda aðgengilegt að veita Samkeppniseftirlitinu heimild í stjórnsýslukafla frumvarpsins til að hafa afskipti af þessari atvinnugrein,“ segir í bréfi 365 miðla til menntamálanefndar og talið ámælisvert að nefndin kjósi að virða að vettugi skýrt álit ESA. „Með því er vísvitandi verið að brjóta gegn regluverki EES og engin tilraun gerð til að tryggja sanngjarna samkeppni samkvæmt skuldbindingum EES-réttar.“ 365 miðlar eiga meðal annars og reka Stöð 2, Bylgjuna og Fréttablaðið. Álit ESA varðandi stöðu RÚV, má rekja til kæru sem Norðurljós, forveri 365, lagði inn fyrir níu árum. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Innlent Einar horfir til hægri Innlent „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar Erlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Fleiri fréttir Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Sjá meira