Of miklar kröfur gerðar til ungra barna í skýrslutökum 7. apríl 2011 09:30 Þorbjörg Sveinsdóttir. Mun meiri líkur eru á því að kynferðisbrotamenn sem brjóta gegn börnum séu ákærðir ef framburður barna er nákvæmur. Kært er í 16% mála yngstu barnanna, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar.
Mun meiri líkur eru á því að kynferðisbrotamenn verði ákærðir fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum, þegar framburður barnanna er greinargóður og þau geta greint skýrlega frá ofbeldinu. Aldur barnanna hefur mikil áhrif á ákæru og varða þær langflestar börn á aldrinum 12 til 14 ára. Einungis er ákært í 16 prósentum mála þegar börn á aldrinum 3 til 5 ára eiga í hlut. Þetta eru niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar sem Þorbjörg Sveinsdóttir, starfsmaður Barnahúss, vann sem lokaverkefni sitt í mastersnámi í sálfræði við Háskóla Íslands. Skoðaður var framburður 285 barna sem komu í skýrslutöku í Barnahús á rúmlega fimm ára tímabili, frá árinu 1998 til 2003, vegna gruns um að hafa sætt kynferðislegu ofbeldi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða tengsl barna í skýrslutökum í Barnahúsi við orðalag í ákærum og dómsniðurstöður. „Það eru gerðar miklar kröfur til barna í skýrslutökum. Þau eru beðin um smáatriði, nákvæmar lýsingar og beðin um að lýsa tilfinningum sínum. Það getur reynst mjög erfitt fyrir ung börn, sem er sennilega hluti af skýringunni hvers vegna hærra hlutfall þeirra mála sem ákært er í eru börnin á aldrinum 12 til 14 ára,“ segir Þorbjörg. Í 75 prósentum tilvika greindu börnin frá kynferðislegu ofbeldi þegar þau komu í Barnahús. Ákært var í málum 33 prósenta barna, þar af 42 prósenta barna sem greindu frá ofbeldinu. Fimm börn höfðu ekki greint frá, en þar var samt sem áður ákært. Var það vegna játninga gerenda og vitnisburða annarra einstaklinga. Orðalag í þeim ákærum sem gefnar voru út var í 74 prósentum tilvika í samræmi við framburð barns. Alls voru 63 gerendur ákærðir fyrir kynferðisbrot í 95 málum. Um 60 prósent gerenda brutu gegn einu barni en tæp 40 prósent gegn fleiri en einu. Meiri líkur eru á ákæru þegar tengsl geranda og barns voru utan fjölskyldu. Rannsakendur hafa flokkað niður alvarleika kynferðisbrota eftir stigum, vægustu brotin stig eitt og þau alvarlegustu stig fimm. Ákært var í 60 prósentum tilvika þegar brot var á alvarleikastigi fjögur, en aðeins í 25 prósentum á alvarleikastigi fimm. Brot gegn börnum á aldrinum 3 til 5 ára voru öll á alvarleikastigum þrjú til fimm. Þorbjörg segir að miðað við niðurstöður rannsóknarinnar sé tvisvar sinnum líklegra að gefin sé út ákæra ef kynferðisbrot gegn börnum séu endurtekin. Þá er það um átta sinnum líklegra ef frásögn barns sé nákvæm. „Helsta og eina forspá þess að sakborningur sé sakfelldur er að hann hafi brotið gegn tveimur eða fleiri börnum,“ segir Þorbjörg. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Einar horfir til hægri Innlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Erlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Harmar ákvörðun Guðmundar Innlent Fleiri fréttir „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Sjá meira