Dæmd fyrir að kýla snyrtifræðing 6. apríl 2011 10:15 Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi konuna.
Rúmlega tvítug kona hefur verið dæmd í þriggja mánaða fangelsi og til greiðslu rúmlega 200 þúsunda króna í skaðabætur fyrir að kýla aðra konu í andlitið. Hin síðarnefnda hlaut glóðarauga og blóðnasir. Árásarkonan kvaðst hafa verið á leið á dansgólf skemmtistaðar á Akureyri ásamt vinkonu sinni þegar karlmaður hefði farið að dansa í kringum hana og strjúka á henni rassinn og mjaðmirnar. Hún hefði hellt úr glasi yfir hann, hann haldið sér fastri, hin konan þá skorist í leikinn og hún slegið hana óvart. Dómurinn taldi þetta ótrúverðugt þegar mikill áverki fórnarlambsins var hafður í huga. Að auki báru konan, sem fyrir árásinni varð, svo og vitni, að árásarkonan hefði átt upptökin á dansgólfinu. Þá kom fram að vegna áverka fórnarlambsins varð hún að vera frá vinnu dögum saman, því ekki þótti boðlegt að láta hana mæta til vinnu sem snyrtifræðingur, með bólgið og blátt auga, vegna eðli starfsins. Árásarkonan hafði áður verið dæmd fyrir ofbeldisbrot og rauf nú skilorð.- jss
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Fleiri fréttir Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Sjá meira