Fylgja ekki sáttmála SÞ 6. apríl 2011 04:00 Samtök um velferð barna hér á landi telja brýnt að íslensk stjórnvöld lögbindi barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. fréttablaðið/hörður
Íslensk stjórnvöld standa ekki við fjölmörg atriði í samningi um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Í nýrri skuggaskýrslu Barnaheilla – Save the Children, Mannréttindaskrifstofu Íslands og UNICEF – Barnahjálpar SÞ á Íslandi, er farið yfir stöðu barna á Íslandi í samræmi við fjölmörg ákvæði Barnasáttmálans. Skortur er á heildarstefnu stjórnvalda í málefnum barna og barnafjölskyldna. Brestur er talinn á því að 37. grein Barnasáttmálans sé uppfyllt hér á landi. Hún varðar ungmenni sem brjóta af sér og þurfa að sæta fangelsisrefsingu. Þau eru ekki alltaf vistuð aðskilin frá fullorðnum föngum. Samningur á milli Fangelsismálastofnunar og Barnaverndarstofu um vistun ungra afbrotamanna er í gildi en samkvæmt skýrslunni virkar hann ekki sem skyldi. Vinna mun vera hafin hjá innanríkisráðuneytinu til að tryggja að ungmenni séu aðskilin frá fullorðnum föngum, að því er kemur fram í skýrslunni. Íslensk stjórnvöld staðfestu sáttmálann árið 1992, en samt sem áður er honum enn ekki fylgt að fullu. Tilgangur skýrslunnar er meðal annars sá að veita stjórnvöldum aðhald og leiðbeiningu. Gerðar hafa verið tvær aðgerðaáætlanir, annars vegar um barnavernd og hins vegar til að bæta stöðu barna og unglinga. Stjórnvöld eru hvött til aðgerða strax, meðal annars með því að nýta sér þær umfangsmiklu upplýsingar sem safnað er á hinum ýmsu sviðum í samfélaginu er varða börn og stöðu þeirra. Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, segir brýnast að móta heildarstefnu í málefnum barna og að þeim aðgerðaáætlunum sem eru til staðar verði fylgt að öllu leyti. „Við höfum lagt áherslu á börn innflytjenda og að það þurfi að fylgja þeim sérstaklega eftir,“ segir hún. „Einnig er mörgu ábótavant er varðar málefni fatlaðra barna.“ Petrína segir mikilvægt að Barnasáttmálinn verði lögfestur og kynntur því fagfólki er vinnur með börnum, bæði í námi og starfi. „Þannig er hægt að sækja mál fyrir íslenskum dómstólum og vitna í Barnasáttmálann,“ segir hún. sunna@frettabladid.is
Mest lesið „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Kom ekki á teppið Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Innlent Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fleiri fréttir Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Sjá meira