Mál Priyönku tekið til skoðunar að nýju 5. apríl 2011 09:00 priyanka thapa Útlendingastofnun synjaði umsókn Priyönku þar sem hún taldi ekki nægar sannanir fyrir því að hún yrði neydd í hjónaband eða að hennar biði ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í Nepal. Fréttablaðið/Vilhelmi
Ögmundur jónasson Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra boðar breytingar á stefnu og regluverki Útlendingastofnunar í kjölfar þess að Priyönku Thapa, 23 ára stúlku frá Nepal, var synjað um dvalarleyfi af mannúðarsjónarmiðum hér á landi. Ögmundur átti fund með stjórnendum Útlendingastofnunar í gærmorgun og í kjölfarið fékk Priyanka tilkynningu um að umsókn hennar yrði endurskoðuð. Mál Priyönku Thapa hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga. Hún sagði sögu sína upphaflega í Fréttablaðinu síðasta aðfangadag þar sem kom fram að ef hún fengi ekki dvalarleyfi á Íslandi biði hennar þrældómur í heimalandinu. Móðir hennar, sem er einstæð, á orðið erfitt með að framfleyta sér og fötluðum syni sínum. Hún tók því til þess ráðs að gefa Priyönku fertugum manni sem hefur lofað að sjá fyrir fjölskyldunni. Priyanka hefur aldrei hitt manninn. Hún vill heldur búa hér á landi og afla sér frekari menntunar. Útlendingastofnun synjaði umsókn Priyönku, taldi ekki nægar sannanir fyrir því að hún yrði neydd í hjónaband eða að hennar biði ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í heimalandi sínu. Innanríkisráðherra átti fund með stjórnendum Útlendingastofnunar í gærmorgun þar sem farið var yfir stefnu og verklag stofnunarinnar. Síðar um daginn fékk Priyanka þær upplýsingar að umsókn hennar yrði tekin upp að nýju. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fagnar ákvörðun Útlendingastofnunar. „Ég átti fund með Útlendingastofnun í gær þar sem við fórum yfir stefnu og regluverk stofnunarinnar þegar kemur að því að veita fólki dvalarleyfi eða hafna. Þar eru augljóslega margar brotalamir sem verður að laga.“ Ögmundur segir að þeir sem gagnrýni störf Útlendingastofnunar verði að hafa það í huga að starfsmenn hennar vinni eftir þeim reglum og þeirri stefnu sem stjórnvöld setji. „Ef sú stefna er röng verða stjórnvöld að breyta henni og það ætla ég að gera,“ segir innanríkisráðherra. Sigurður Örn Hilmarsson, lögfræðingur Priyönku, segir að nú verði unnið í umsókninni og frekari gögn lögð fram. „Það er ánægjulegt að sjá að Útlendingastofnun hafi séð að sér með þetta mál,“ segir Sigurður Örn. Hann segir óvíst hvenær niðurstaða fáist í málið. „Það tók þrjá mánuði að afgreiða síðustu umsókn hennar svo stofnunin þekkir málið vel. Ég reikna því ekki með að þetta taki jafn langan tíma núna.“ Ekki náðist í Kristínu Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar, í gær.kristjan@frettabladid.is
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira