Skólameistarar bíða eftir fundi 4. apríl 2011 05:30 Skólameistarar, þar á meðal Hjalti Jón Sveinsson í Verkmenntaskóla Akureyrar, bíða eftir frekari útlistunum á hugmyndum yfirvalda.fréttablaðið/heiða.is „
Mér vitandi hefur ekkert verið rætt við stjórnendur framhaldsskóla um þessi mál. Við vitum bara að við eigum að skera niður kostnað um 5,5 prósent á þessu ári og búumst við öðru eins á því næsta. Ég sé ekki hvernig þetta á að vera mögulegt miðað við fjárveitingar til framhaldsskólanna,“ segir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri. Fram kom í Fréttablaðinu á laugardag að öllum umsækjendum í framhaldsskóla, sem eru 25 ára og yngri og uppfylla inngönguskilyrði, verði tryggð skólavist næsta haust samkvæmt drögum að aðgerðapakka sem ríkisstjórnin hefur kynnt fyrir aðilum vinnumarkaðarins. Hjalti Jón segir sjálfsagt að reyna að finna úrræði fyrir þá úr þessum aldurshópi sem hingað til hafa ekki komist inn í framhaldsskóla. „Það verður fróðlegt að sjá með hvaða hætti yfirvöld hyggjast hafa samráð við skólana um þessi mál. Eftir rúma viku funda skólameistarar með menntamálaráðherra á samstarfsnefndarfundi. Ég reikna með að við fáum frekari upplýsingar þá.“ Þrír aðrir skólameistarar sem Fréttablaðið ræddi við, þau Ingibjörg Guðmundsdóttir í Kvennaskólanum í Reykjavík, Jón B. Stefánsson í Tækniskólanum og Már Vilhjálmsson í Menntaskólanum við Sund, eru sammála um að fagna beri þessum fyrirætlunum yfirvalda. Þau bíði eftir frekari upplýsingum um ráðahaginn frá yfirvöldum.- kg
Mest lesið „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent Gátu loks yfirheyrt konuna Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Innlent Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Innlent Fleiri fréttir Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Gátu loks yfirheyrt konuna Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sjá meira