Sýnatöku úr íbúum vegna díoxíns lokið 2. apríl 2011 05:00 Tekin hafa verið sýni úr einstaklingum sem ætla má að hafi komist í snertingu við díoxín. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Haraldur Briem Fyrsta hluta heilsufarsrannsóknar sóttvarnalæknis vegna díoxínmengunar frá sorpbrennslum á Ísafirði, Kirkjubæjarklaustri og Vestmannaeyjum er lokið. Ákveðið var að taka sýni úr íbúum til að ganga úr skugga um hvort díoxín, sem greinst hefur í skepnum, afurðum og fóðri í nálægð við sorpbrennsluna Funa á Ísafirði, hefði náð til íbúa. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að sýnatakan hafi gengið að óskum, þrátt fyrir að hún hafi dregist nokkuð frá því sem upphaflega var áformað. Íbúar hafi sýnt mikinn samstarfsvilja. Næsta skref er að koma blóðsýnum, auk brjóstamjólkursýnis, á rannsóknastofu erlendis til greiningar. Niðurstaðna er að vænta eftir fimm til sex vikur. „Þetta er ekki stór hópur. Sennilega tugur manns sem gaf blóðsýni og ein kona sem gaf brjóstamjólkursýni,“ segir Haraldur. „Síðan verða tekin töluvert fleiri viðmiðunarsýni; tíu á Ísafirði og tíu á höfuðborgarsvæðinu í framhaldinu. Þetta verður talsvert stór hópur manna.“ Hluti af rannsókninni er að kanna blýmagn í hári, en ef blý mælist er líklegt að einnig sé þar að finna díoxín. Sérstök rannsókn á blýmagni í hári er síðan fyrirhuguð á vegum Háskóla Íslands og Matvælastofnunar; sótt hefur verið um styrki til þeirrar rannsóknar, sem gæti hafist eftir nokkra mánuði. Meðal þeirra sem gáfu sýni á Ísafirði eru hjónin á Efri-Engidal, þar sem díoxín mældist upphaflega í kúamjólk. Einnig í hópnum er dóttir þeirra, sem gaf auk þess brjóstamjólkursýni, en hún bjó hjá foreldrum sínum á meðan hún gekk með barnið. Einn starfsmaður sorpbrennslunnar Funa gaf sýni. Haraldur ítrekar að hann eigi ekki von á að fólk hafi orðið fyrir heilsutjóni af völdum mengunarinnar. Hins vegar snúi rannsóknin, sem á sér enga hliðstæðu hér á landi, að því mikilvæga atriði að leita upplýsinga um hvað gerðist í sveitarfélögunum þremur. Rannsóknin fellur inn í allsherjarúttekt þar sem Umhverfisstofnun mun meðal annars gera sérstaka rannsókn á jarðvegi í nágrenni við sorpbrennslurnar, auk annarra svæða þar sem er mengandi starfsemi. Sýnatakan er áformuð í maí næstkomandi.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira