Ætla að kæra aðstoð verði hún veitt 22. mars 2011 08:00 Bæjarstjórn Kópavogs tekur í dag fyrir samþykkt bæjarráðs á að greiða málskostnað þriggja bæjarfulltrúa sem fyrirtækið Frjáls miðlun hefur höfðað meiðyrðamál gegn. Fréttablaðið/Vilhelm
Guðríður Arnardóttir Höfðað verður mál á hendur Kópavogsbæ fari svo að bæjarstjórn staðfesti í dag samþykkt bæjarráðs Kópavogs frá því á fimmtudag um að greiða lögmannskostnað vegna meiðyrðamáls á hendur þremur bæjarfulltrúum. Félagið Frjáls miðlun höfðaði málið gegn Guðríði Arnardóttur og Hafsteini Karlssyni úr Samfylkingunni og Ólafi Þór Gunnarssyni úr Vinstri grænum vegna ummæla þeirra í blaðagrein. Frjáls miðlun er í eigu dóttur og tengdasonar Gunnars I. Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, en ummælin vörðuðu viðskipti Frjálsrar miðlunar við Kópavogsbæ. Jóhann H. Hafstein héraðsdómslögmaður segist fara fyrir hópi einstaklinga í Kópavogi sem sætti sig ekki við að bærinn leggi út fyrir kostnaði bæjarfulltrúanna. Hann segist gera ráð fyrir að fyrsta skrefið yrði að kæra málið til innanríkisráðuneytisins, sem fari með málefni sveitarstjórna. „Í rauninni er það réttur hvers Kópavogsbúa að bera þessa ákvörðun undir réttan aðila," áréttar hann. Bæjarráð setti sem skilyrði fyrir samþykkt sinni á greiðslu kostnaðarins að bæjarfulltrúarnir undirrituðu samkomulag við bæinn þess efnis að þeir endurgreiði í bæjarsjóð greiðslu vegna málskostnaðar verði niðurstaða Hæstaréttar Íslands sú að þeir hafi brotið gegn ákvæðum hegningarlaga. Gerð er athugasemd við að ekki liggi fyrir endanlegur kostnaður vegna málarekstursins og að í raun sé íbúum Kópavogs gert að greiða lögmannskostnað fyrir bæjarfulltrúa í einkamáli þeirra. Kópavogsbær eigi enga aðild að málinu. Átalið er að bæjarráð hafi samþykkt greiðslurnar þrátt fyrir að í fyrirliggjandi áliti Lagastofnunar Háskólans komi fram að greiðsla málskostnaðar fyrir kjörna bæjarfulltrúa búi til örðug álitamál í ljósi jafnræðisreglna og fordæmi sem leitt gæti til þess að játa yrði öðrum en kjörnum fulltrúum sambærilega aðstoð. Jóhann segir hins vegar upphæðir skipta minna máli í þessu samhengi, fyrir liggi að kostnaðurinn vegna málarekstursins verði ekki slíkur að það íþyngi bænum. „Það er prinsippmál að bæjarfulltrúar geti ekki sjálfir samþykkt til sín greiðslur úr bæjarsjóði," segir hann. olikr@frettabladid.isHafsteinn KarlssonÓlafur Þór Gunnarsson
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys austan við Vík Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Sjá meira