Þingmenn gagnrýna harðlega breytingar á réttargeðdeildinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. október 2011 15:32
Það er óviðunandi og ámælisvert að ákvörðun um að leggja niður réttargeðdeildina að Sogni sé tekin einhliða af framkvæmdastjórum Landspítalans, segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Björgvin gagnrýndi meðal annars við upphaf fundar á Alþingi í dag að ekkert samráð hafi verið haft um málið við sveitarfélög á svæðinu. Hann krafðist þess að fjárlaganefnd Alþingis yrði gerð grein fyrir faglegum og fjárhagslegum forsendum fyrir þessari ákvörðun áður en vikan væri á enda. Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir gagnrýni Björgvins. Hún sagði að fréttirnar væru sláandi. „Ég hélt að við hefðum lært eitthvað af umræðunni í fyrra og það væri ljóst svona ákvarðanir á ekki að taka án samráðs við hlutaðeigandi," sagði Unnur Brá. Í fyrra hafi velferðarráðherra lofað meira samráði við niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, tók jafnframt undir málflutning Björgvins og Unnar Brár. Rétt er að taka fram að allir fyrrnefndir þingmenn koma úr Suðurlandskjördæmi, þar sem réttargeðdeildin að Sogni er staðsett.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps Erlent Fleiri fréttir Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Sjá meira