Innlent

Víkingur Heiðar: Þetta er kvöld lífs míns.

Víkingur Heiðar. Myndin er úr safni.
Víkingur Heiðar. Myndin er úr safni. Mynd/ Valli.
Víkingur Heiðar Ólafsson, konsert píanisti, sem flutti lagið Ave Maria á opnunartónleikum Hörpunnar var afar hrifinn af hljómburði hússins.

„Þetta er kvöld lífs míns," sagði hann svo í viðtali á RÚV ásamt Jóni Gnarr, borgarstjóra.

Víkingur sagði hljómburðinn jafnast á við það besta sem hann hefði heyrt. Hann sagði hljómburðinn raunar svo magnaðan að salurinn spilaði á tónlistarmanninn eins og tónlistarmaðurinn spilar á salinn.

„Það er erfitt að lýsa því, en þetta gerist ekki betra," sagði Víkingur Heiðar að lokum.

Jón Gnarr sagðist einnig hafa orðið var við magnaðan hljómburð í salnum.

„Ég er með svona high-tech heyrnartæki og ég heyrði hljóð sem ég hef aldrei heyrt áður," sagði Jón um hljómburðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×