Algjört minnisleysi í dómsal 19. október 2011 06:30 Tvö hinna ákærðu (lengst til hægri og til vinstri) á leiðinni í aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fréttablaðið/GVA
Ákæruvaldið krefst átján mánaða fangelsis yfir tveimur síbrotamönnum, sem ákærðir eru fyrir vopnað rán. Mennirnir tilheyra svokölluðu Árnesgengi, en meðlimir þess voru ákærðir í sjötíu liðum eftir að hafa farið ránshendi um landið árið 2006. Þá er krafist sex til níu mánaða fangelsis yfir konu sem ákærð er fyrir hlutdeild í ráninu. Fólkið er ákært fyrir að færa mann nauðugan, með því að ógna honum með hnífum, á heimili hans og ræna þar tækjum og munum að verðmæti um tvær milljónir króna. Aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Annar mannanna mætti fyrir dóm svo og konan. Hinn mætti ekki. Fram kom að báðir mennirnir höfðu játað sök, en konan neitað. Algert minnisleysi sakborninga var áberandi í dómsal í gær. Maðurinn mundi atburðarásina „rosalega óljóst“. Tímabilið „var allt í þoku“. Sakborningurinn kvaðst þó muna óljóst eftir fluguhnýtingarsetti, en það var meðal muna á þýfislistanum. Þá var hann „alveg viss um að það voru engir hnífar þarna,“ og mundi alls ekki eftir hlutdeild konunnar. Hann kvaðst hins vegar hafa heyrt því fleygt að sá rændi hefði átt í ástarsambandi við konu, komið hefði upp ósætti og hún hreinsað allt út frá honum. Konan ákærða átti við svipað minnisleysi að stríða og maðurinn fyrir dóminum. „Ég man alveg ótrúlega lítið,“ sagði hún en kvaðst þó muna að þremenningarnir ákærðu hefðu farið heim til fórnarlambsins. Spurð um ferð hennar og annars mannanna í hraðbanka, þar sem þau tóku út peninga á kort fórnarlambsins eftir hið meinta rán kvaðst hún „halda“ að hann hefði tekið út þennan pening, sjálf hefði hún ekki verið með neitt kort. Í dóminum kom hins vegar fram, að konan hafði lýst atburðarás ítarlega í skýrslutöku hjá lögreglu. Fórnarlambið mætti í réttarsal sem vitni. Hann kvaðst hafa verið rændur, vísaði annars í lögregluskýrslur, mundi lítið eftir þýfislistanum, kvaðst ekki viss um ógnun með hníf og sagðist ekki hafa verið í sambandi við stúlku á þessum tíma. jss@frettabladid.is
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira