Innlent

Gerðardómi frestað á ný

Ragnar Guðmundsson
Ragnar Guðmundsson
Gerðardómi í deilum Norðuráls og HS orku hefur verið frestað fram í miðjan næsta mánuð. Deilan snýst um verð á orku frá fyrirtækinu, en fyrirtækin hafa tekist á fyrir gerðardómi í Svíþjóð.

Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að fyrirtækið sé klárt í uppbyggingu álvers í Helguvík að gerðardómi föllnum. Nokkuð hefur verið rætt um ágæti jarðvarmaorku til álversframleiðslu, í ljósi ákvörðunar Alcoa um að hætta við álver á Bakka. Ragnar segir álver Norðuráls á Grundartanga að stærstum hluta rekið á jarðvarma og sé sönnun þess að slíkt gangi, í góðri samvinnu allra aðila.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×