Tæpur milljarður í sektir hjá Samkeppniseftirlitinu 6. janúar 2011 14:31 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftrlitsins
Á árinu 2010 sektaði Samkeppniseftirlitið níu aðila um samtals tæpan milljarð króna í fimm málum. Af þessum níu aðilum voru sjö sektaðir vegna ólögmæts samráðs, einn fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu og einn fyrir brot á tilkynningaskyldu vegna samruna. Þetta kemur fram í ársskýrslu Samkeppniseftirlitsins sem var birt í dag. Hæsta sektin, 400 milljónir króna, var lögð á Skiptasamstæðuna vegna rannsóknar á ólögmætu samráði milli Tæknivara ehf., dótturfélags Skipta, og Hátækni ehf., á heildsölumarkaði fyrir sölu á farsímum. Í kjölfar húsleita í apríl og maí síðastliðinum sneru Skipti sér til Samkeppniseftirlitsins og óskuðu eftir að veita liðsinni við rannsókn málsins. Var málinu í framhaldinu lokið með sátt gagnvart Skiptasamstæðunni, en málið gagnvart Hátækni er enn til meðferðar. Þá sektaði Samkeppniseftirlitið Haga hf. og fimm kjötvinnslufyrirtæki um samtals rúmar 400 milljónir króna vegna samkeppnishamlandi samstarfs. Á fyrri hluta ársins var fyrirtækið Lyf og heilsa hf. sektað um 130 milljónir króna, en fyrirtækið var talið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu með aðgerðum sem höfðu það að markmiði að hindra að nýr keppinautur í lyfsölu á Akranesi næði fótfestu á markaðnum. Lyf og heilsa kærðu ákvörðunina til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem taðfesti brotin en lækkaði sektirnar um 30 milljónir króna.Gripið inn í 15 samruna Á árinu 2010 tók Samkeppniseftirlitið rúmlega 23 ákvarðanir í samrunamálum samanborið við 24 ákvarðanir á árinu 2009. Langflestir samrunanna vörðuðu yfirtöku banka á atvinnufyrirtækjum. Setti Samkeppniseftirlitið 15 þessara samruna ítarleg skilyrði sem nánar er fjallað um annars staðar í ársriti þessu.Fjórar húsleitir Samkeppniseftirlitið framkvæmdi fjórar húsleitir á árinu 2010. Ein húsleitanna varðar grun um misnotkun á markaðsráðandi stöðu og þrjár þeirra grun um ólögmætt samráð.Mörg mál fyrir áfrýjunarnefnd og dómstólum Talsvert er látið reyna á málsmeðferð og ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins. Á árinu 2010 féllu 13 úrskurðir í áfrýjunarnefnd samkeppnismála, auk þess sem 10 mál voru til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur eða Hæstarétti.
Mest lesið „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Sjá meira