Ríkið samræmir leigugjald á lóðum 8. október 2011 06:00 Jón Bjarnason
Landbúnaðarráðuneytið hefur sent um 160 aðilum bréf þar sem tilkynnt er um hækkun á leigu fyrir sumarhúsalóðir og ýmsa aðra smáskika í eigu ríkisins þar sem ekki er greidd sú 54 þúsund króna lágmarksleiga sem ráðuneytið hefur sett. „Yngri leigusamningar hafa verið með þessari lágmarksleigu en eldri samningarnir hafa ekki í öllum tilvikum verið hækkaðir. Hugmyndin er ekki sú að hækka leiguna heldur að samræma samningana,“ útskýrir Óskar Páll Óskarsson, lögfræðingur í landbúnaðarráðuneytinu. Dæmi um þessar breytingar eru jörðin Grísatunga og lóð Kleppjárnsreykjaskóla sem Borgarbyggð hefur á leigu. Þar hefur leiguupphæðin verið 21.200 krónur á ári fyrir skólalóðina og 37.000 krónur fyrir Grísatungu sem meðal annars á land að laxveiðiánni Gljúfurá. Í báðum þessum tilvikum vill ráðuneytið nú innheimta 54.034 króna ársleigu og er sveitarstjórnin nú að velta réttmæti þeirrar kröfu fyrir sér. Óskar segir að landbúnaðarráðuneytið hafi í sumar fengið laganema til aðstoðar við að yfirfara leigusamningana undir handleiðslu starfsfólks jarðadeildarinnar. Við grúsk hans hafi ýmislegt komið á daginn. Til dæmis hafi láðst að rukka einn leigutaka eftir að hann tók við lóð af öðrum á árinu 2008. Hækkunin á að taka gildi um mitt næsta ár en lóðarleigjendur hafa frest til 1. nóvember til að gera athugasemdir.- gar
Mest lesið Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Innlent Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Rapp og dýrðir í Búðardal Innlent Fleiri fréttir „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Quang Le fer ekki langt Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Íslendingar berjast um eitt af efstu átta sætunum á EM Bandero segist elta hvalbátana og Pollamótið hafið fyrir norðan Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Sjá meira