Hópur Guðmundar fer ört stækkandi 8. október 2011 07:00 Guðmundur er í viðræðum við ýmsa óháða stjórnmálaflokka á landinu öllu.fréttablaðið/valli „
Þetta gengur alveg glimrandi vel. Þetta verður úti um allt land, það er þannig áhugi,“ segir Guðmundur Steingrímsson þingmaður um viðræður vegna væntanlegs framboðs nýs flokks í þingkosningunum árið 2013. „Hópurinn er alltaf að stækka.“ Guðmundur hefur, eins og kunnugt er, verið í viðræðum við fólk úr Besta flokknum og L-listanum á Akureyri, ásamt fólki úr öðrum óháðum framboðum á Vestur-, Austur- og Suðurlandi. „Þetta er enn á þreifingastigi og verður að fá að koma í ljós,“ segir hann. „Það er meðal annars fólk úr L-listanum sem hefur talað við okkur og fólk í alls konar óháðum framboðum annars staðar líka. Það er kannski engin tilviljun, við erum að tala um svipaða hluti og óháðir flokkar víðs vegar um landið.“ Geir Kristinn Aðalsteinsson, oddviti L-listans, tekur því fagnandi að verið sé að þreifa fyrir sér með stofnun nýs stjórnmálaflokks. Hann segir L-listann ekki ætla í framboð sem heild en vissulega sé áhugi meðal fólks í flokknum að halda áfram viðræðum. „L-listinn ætlar ekki að tengjast þessum nýja flokki. En ef einhver innan okkar raða hefur áhuga á að starfa með honum myndi listinn ekki setja sig á móti því,“ segir Geir. Hann segir engan af bæjarfulltrúum listans ætla í framboð. „Við fögnum því þó að menn séu að gera þetta. Þetta er þarft framtak og það þarf nýja sýn á stjórnmálin,“ segir hann og bætir við að þar sem L-listinn sé með hreinan meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar vanti klukkutíma í sólarhringinn frekar en hitt og því sjái hann ekki fram á að menn hafi tíma í frekari stjórnmálastörf.- sv
Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Innlent Fleiri fréttir Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Sjá meira