Verri afkoma í fjármálum en stefnt var að 8. október 2011 20:30
Nýjustu áætlanir um hallarekstur ríkissjóðs sýna nokkuð verri afkomu á næstu árum en þær sem lagðar voru fram í fyrra og hitteðfyrra. Ekki er gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum fyrr en 2014. Sumarið 2009 kynnti fjármálaráðherra áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum til 2013, en þá var ráðgert að hallalaus fjárlög næðust undir lok tímabilsins. Þegar fjárlagafrumvarp þessa árs var kynnt í fyrra var gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum á næsta ári. Nú hefur áætlun um afkomuna verið birt í tengslum við fjárlög næsta árs, en þar sést dekkri mynd en í báðum áætlunum síðustu ára. Ekki er ráðgert að ná hallalausum ríkisrekstri fyrr en 2014 og þá um tæpt prósent af landsframleiðslu. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu stafar þetta einkum af því að ráðist var í harðar aðhaldsaðgerðir fyrr á tímabilinu sem hafi skilað ríkissjóði miklu, en fjármálaráðherra hefur haldið því á lofti á að viðsnúningur hafi orðið á fjárlögum síðustu misserin. Það hafi skapað svigrúm til að seinka markmiðum um afgang af heildarjöfnuði, en auk þess hafi kjarasamningar í vor haft mikil áhrif á afkomu ríkissjóðs. Þá standi hagfræðileg rök til þess að ganga ekki jafnhart fram í aðhaldsaðgerðum og upphaflega var ráðgert og því hafi verið dregið úr aðhaldskröfunni. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, segir því í samtali við fréttastofu að seinkun markmiðanna sé til marks um að áætlun AGS og ríkisstjórnarinnar hafi gengið vel frekar en hitt, og vísar því alfarið á bug að ríkisstjórninni sé að mistakast að ná tökum á ríkisfjármálunum.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Erlent Fleiri fréttir Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent