Treystir stöðu Íslands í makrílviðræðum 8. október 2011 05:00 Tómas H. Heiðar
Niðurstöður rannsóknarleiðangurs sem sýnir að um fjórðungshluti makrílstofnsins í Norðaustur-Atlantshafi hafi haldið sig innan íslensku efnahagslögsögunnar við fæðuöflun um fjögurra mánaða skeið í ár, ættu að treysta samningsstöðu Íslands í viðræðum um skiptingu makrílkvótans. Þetta segir Tómas H. Heiðar í samtali við Fréttablaðið, en hann er aðalsamningamaður Íslands í þessum viðræðum. Eins og kom fram í frétt blaðsins í gær mældust um 1.100 þúsund tonn af makríl innan íslenskrar lögsögu, sem er svipað og í fyrra. Tómas segir að athyglisvert sé að vestan við Ísland var bæði makríllinn sjálfur hvað þéttastur svo og átan, mikilvægasta fæða makrílsins. „Að mínu mati treysta þessar niðurstöður stöðu Íslands í samningaviðræðunum um makrílveiðar og auka líkur á því að samkomulag geti tekist um raunhæfa skiptingu kvóta í haust milli strandríkjanna fjögurra, Íslands, ESB, Noregs og Færeyja.“ Næsti samningafundur verður haldinn í London dagana 19. til 21. október. „Brýnt er að ná samkomulagi um makrílveiðarnar sem allra fyrst til að fyrirbyggja frekari ofveiði úr stofninum sem gæti leitt til hruns hans á tiltölulega stuttum tíma,“ bætir Tómas við. „Umgangast þarf þessa mikilvægu auðlind af ábyrgð og tryggja að veiðarnar séu sjálfbærar. Ljóst er að öll strandríkin, þar með talið Ísland, munu bera meira úr býtum til lengri tíma litið með samkomulagi en án þess.“ - þj
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira