Víða slæm færð í dag Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. desember 2011 08:03 Vegfarendur eru hvattir til varkárni í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar vegfarendur við slæmri færð sökum vatns og krapa á stofnbrautum. Inni í íbúðarhverfunum er þæfingsfærð og í sumum tilfellum þungfært. Lögreglan biður því alla um að fara varlega og fara hægt yfir svo það megi komast hjá óhöppum og slysum. Samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi er hríðarveður, skafrenningur og takmarkað skyggni fram eftir degi um norðvestanvert landið frá Snæfellsnesi vestur um og norður í Eyjafjörð. Suðvestan- og sunnanlands hefur hlánað. Hvöss S-átt í fyrstu, en lægir um tíma fyrir hádegi. Á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum gengur í norðvestan storm 20 til 25 m/s um klukkan 13 með krapahríð, en veðrið gengur svo niður síðdegis. Mjög hvasst verður á Suðurlandi og hviður allt að 35-40 m/s undir Eyjafjöllum frá því um klukkan 14 til 17. Á fjallvegum Austfjarða má gera ráð fyrir stórhríðarveðri nú fyrir hádegi en það gengur niður og hlánar um miðbik dagsins. Gengur í norðan og norðvestanstorm með snjókomu og skafrenningi norðanlands um klukkan 16 til 18 og norðaustan- og austanlands heldur síðar eða um klukkan 19 til 21 þá með snörpum hviðum sunnan undir Vatnajökli og á Austfjörðum fram á nóttina. Vegfarendur athugið að víða er hlýtt og því má búast við slæmri hálku.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira