Í Árneshreppi eru allir með gervitré 24. desember 2011 06:00 Nemendur skólans fjórir, þau Ásta Þorbjörg Ingólfsdóttir, Júlíana Lind Guðlaugsdóttir, Þórey Ingvarsdóttir og Kári Ingvarsson, leika frumsamið leikrit sem nefnist Slefandi jólagjöf. Mynd/Elísa Ösp Valgeirsdóttir „
Héðan fara allir að minnsta kosti eina verslunarferð til Reykjavíkur,“ segir Ragnheiður Edda Hafsteinsdóttir, íbúi í Norðurfirði í Árneshreppi á Ströndum. Árneshreppur er ein einangraðasta sveit landsins, í það minnsta yfir vetrarmánuðina og það getur verið svolítið spennandi fyrir jólin. „Ef flugið klikkar núna rétt fyrir jólin þá fær fólk ekki rjóma og annan mjólkurmat um jólin,“ bætir hún við, en Edda, eins og hún er kölluð, sér um Kaupfélagið í Árneshreppi. „Jólin eru samt ekki svo frábrugðin því sem gerist annars staðar. Nema að kannski er stressið minna. Kaupfélagið er til dæmis bara opið fjóra daga í viku frá eitt til fimm og við þurfum ekkert að breyta því fyrir jól. Hér eru allir sultuslakir.“ Í Kaupfélaginu segir Edda að fáist öll nauðsynjavara og það sem snýr að bústörfunum, auk einhverrar gjafavöru. „Svona ef eitthvað skyldi gleymast í verslunarferðinni suður,“ bætir hún við. Skortur á samgöngum segir Edda hins vegar að sé nokkuð sem fólk lagi sig að. Þannig séu til dæmis ekki til sölu jólatré í hreppnum. „Hér eru allir með gervitré. Ég var að basla við það fyrst eftir að við fluttum að fá mér lifandi tré, en gafst upp á því.“ Vegagerðin segir Edda að neiti að moka nema einu sinni í viku fram að áramótum og eftir það séu engar samgöngur þar til í mars, nema að þeim mun snjóléttara sé. Í Árneshreppi er grunnskólinn Finnbogaskóli, einn sá minnsti í landinu með fjóra nemendur. „Ég á þar elsta barnið, fjórtán ára stelpu. En hún þarf að fara að heiman næsta vetur því hér er enginn tíundi bekkur,“ segir Edda og kveður dóttur sína fá inni hjá ættingjum fyrir sunnan. Elísa Ösp Valgeirsdóttir, skólastjóri Finnbogaskóla, segir jólahald í skólanum hefðbundið, þrátt fyrir fámenni. En vissulega sé kannski svolítið annar bragur á þessu með nemendurna á öllum skólastigum, í öðrum bekk, fjórða, fimmta og svo níunda bekk. „Og jólin sameina náttúrlega alla. Þau halda hér sín litlu jól, en þau eru kannski aðeins öðruvísi hér að því leyti að börnin sjá um öll atriðin og skemmta foreldrum sínum og ættingjum,“ segir Elísa Ösp. Fyrirséð segir hún líka að nemendur haldist fjórir næstu þrjú árin. Þannig bætist ein sex ára í hópinn þegar sú elsta hættir í vor. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira