Gengislán íbúða enn í óvissu Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 5. janúar 2011 18:45
Þrátt fyrir nýsett gengislög viðskiptaráðherra virðist alger óvissa enn ríkja um hvað þúsundir heimila skulda í gengistryggð húsnæðislán. Fordæmisgefandi mál gegn Frjálsa fjárfestingarbankanum fer fyrir Hæstarétt eftir 2 vikur, niðurstaðan gæti breytt endurútreikningi á gengistryggðum húsnæðislánum. Kona sem beðið hefur í óvissu með útbólgið gengislán frá Frjálsa fjárfestingarbankanum í nærri tvö ár hafði samband við fréttastofu. Þegar gengislánafrumvarp viðskiptaráðherra var loks samþykkt rétt fyrir jól, kveðst konan hafa hringt í bankann til að spyrja hvenær þau fengju endurútreikning á láninu og fengið þau svör að þessi lán færu fyrir dóm 19. janúar. Konan varð hvumsa og spyr hvort Frjálsi ætli þá að hunsa gengislánalög viðskiptaráðherra. Lög sem áttu að tryggja að allir með ólögleg gengislán sætu við sama borð. Upplýsingafulltrúi Frjálsa fjárfestingarbankans hafnaði boði um sjónvarpsviðtal en sendi yfirlýsingu þar sem meðal annars kemur fram að: „Þann 19. janúar nk. verða tekin fyrir í hæstarétti tvö mál þar sem Frjálsi fjárfestingarbankinn er málsaðili að. Annar vegar er um að ræða mál einstaklings og hins vegar lögaðila sem tóku erlend lán hjá bankanum... Niðurstöðu hæstaréttar í þessum málum er að vænta seinnipart febrúar mánaðar nk. eða um sama leyti og endurútreikningur erlendra lána einstaklinga mun liggja fyrir." Vart er hægt að skilja yfirlýsingu bankans öðruvísi en svo að niðurstaða Hæstaréttar geti haft áhrif á uppgjör gengistryggðra húsnæðislána. Arnar Þór Jónsson, lögmaður fólksins sem skuldar Frjálsa fjárfestingarbankanum gengistryggða húsnæðislánið - sem er á leið til Hæstaréttar, telur nýju gengislögin séu sniðin fyrir fólk sem skuldar bílalán. Þeir sem skuldi gengistryggð húsnæðislán telji að annað gildi um þau en bílalánin, enda séu húsnæðislánin til lengri tíma og með tryggari veðum. Og hann telur gengislögin nýju ekki taka skýrt á því hvernig eigi að reikna vaxtakjör á þeim lánum frá því lánið var tekið. Samkvæmt Seðlabankanum voru um 8900 heimili með gengistryggð húsnæðislán í árslok 2008 - nýrri tölur liggja ekki á lausu. Dómur Hæstaréttar yrði að líkindum fordæmisgefandi, að mati Arnars, og hann játar því að staða mála sé því þannig að þessar þúsundir heimila séu því - nú þremur árum eftir að krónan tók að hrynja - enn í algerri óvissu um uppgjör lána sinna.
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Sjá meira