Fengu rúm og skólavörur 11. janúar 2011 05:00 Birna Halldórsdóttir afhenti börnum á Haítí skólavörur og rúm fyrir peninga sem íslensk börn söfnuðu með tombólum.Mynd/Rauði Kross íslands
Nærri 600 börn á Haítí njóta góðs af tombólum álíkra margra íslenskra barna, sem höfðu safnað samtals rúmlega einni milljón króna til styrktar starfi Rauða kross Íslands á Haítí. Peningarnir voru notaðir til þess að útvega munaðarlausum börnum, sem hingað til hafa sofið á jörðinni, rúm til að sofa í, ritföng til að nota í skólanum og nýjar skólatöskur. „Það var yndislegt að geta útvegað rúmin því hingað til hafa flest börnin sofið á jörðinni í litlum tjöldum,“ segir Birna Halldórsdóttir, sendifulltrúi Rauða kross Íslands á Haítí, sem er nýkomin heim. „Við fórum líka með stórt tjald á staðinn og núna geta börnin sofið í rúmum í því.“ Á munaðarleysingjaheimilinu eru 24 börn. „Skólinn er nýhafinn og kennslan fer fram í tjaldi. Það var svo gaman að geta afhent börnunum skriffæri og bækur því þau áttu ekkert slíkt og þau langar svo mikið til að læra.“ Birna starfaði á tjaldsjúkrahúsi, sem komið var upp á knattspyrnuvelli í úthverfi höfuðborgarinnar Port-au-Prince. Á sjúkrahúsið hafa komið börn úr nágrenninu til að fá sálrænan stuðning eftir hinn hræðilega jarðskjálfta sem varð 220.000 manns að bana 12. janúar 2010.- gb
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Saltkjötið háskalegt heilsutæpum Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Tölvuleikir bæta sjón Erlent Slökkva á áróðurshátölurunum Erlent Fleiri fréttir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Sjá meira