Konur fá aðeins brot styrkja 8. september 2011 02:00 Mikilvægt að styðja konur í því að gera hugmyndir sínar að veruleika, segir formaður Samtaka frumkvöðlakvenna.Fréttablaðið/GVA „
Konur eru stundum ekki nógu duglegar við að stíga fram. Það er ekki nóg að þær hafi hugmynd á blaði, mikilvægt er að gera þær að veruleika og koma þeim í formi vöru á markað, segir Elinóra Inga Sigurðardóttir, formaður og stofnandi Samtaka frumkvöðlakvenna. Alþjóðleg ráðstefna samtakanna var sett í fyrradag í gær þar sem vakin er athygli á uppfinninga- og frumkvöðlastarfsemi kvenna. Ráðstefnan hefur verið haldin annað hvert ár frá 2007 og er þetta í þriðja sinn sem hún er haldin, en í fyrsta sinn hér á landi. Hér eru 158 konur skráðar á ráðstefnuna, sem haldin er með fjölmörgum fyrirlestrum, umræðum og sýningum í ráðstefnuhúsinu Hörpu í tvo daga en lýkur með hátíðlegum hætti í Bláa lóninu í kvöld. Í kynningu um ráðstefnuna segir að ráðstefnan sé einhver fjölmennasta samkoma frumkvöðlakvenna í Evrópu á árinu. Mikilvægt sé að draga frumkvöðlastarf kvenna fram í dagsljósið. Tölfræðin sýni að konur fái aðeins fimmtung af þeim styrkjum sem séu í boði hér og þá iðulega lægri upphæðir en aðrir fá. Á sama tíma eru konur skráðar fyrir fimmtungi allra fyrirtækja hér. Í öðrum Evrópuríkjum eru konur skráðar fyrir aðeins níu prósentum af öllum einkaleyfum en eiga fimm til fimmtán prósent af öllum tæknifyrirtækjum. - jab
Mest lesið „Það er erfitt að setja sig í hermannagalla í litlu sveitarfélagi” Innlent Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Erlent Munu leggja fram vísindalegar sannanir fyrir því að Brigitte sé líffræðilega kona Erlent Gekk fram á dauða seli: „Svona á enginn að gera“ Innlent Ráðast á fangaverði og skvetta á þá ýmsum líkamsvessum Innlent Svona gæti Sundabraut litið út: Brú eða göng meðal valkosta Innlent Eltihrellir sat fyrir lögregluþjónum og skaut þrjá til bana Erlent 80.000 lögreglumenn í viðbragðsstöðu vegna boðaðra mótmæla í dag Erlent Hafnar kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar Innlent Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem einangra sig félagslega Innlent Fleiri fréttir Ráðherra boðar stórtækar breytingar og Viðskiptaráð vill finna olíu Hafnar kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar Svona gæti Sundabraut litið út: Brú eða göng meðal valkosta Stefnir í að forystan verði óbreytt Gekk fram á dauða seli: „Svona á enginn að gera“ Vilja byggja nýtt geðsvið við hlið Landspítalans í Fossvogi Íbúar þurfa ekki lengur að sjóða neysluvatn Ráðast á fangaverði og skvetta á þá ýmsum líkamsvessum „Það er erfitt að setja sig í hermannagalla í litlu sveitarfélagi” Helmingur nýrra íbúða óseldur í yfir 200 daga Ógnaði öðrum með skærum 3,6 stiga skjálfti mældist í Vatnajökli Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem einangra sig félagslega Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Ekki eigi að stjórna borginni út frá „pólitískri kreddu“ Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi í vændum Mæður sem taka í vörina á meðgöngu og missáttir leigubílstjórar Björn strax hættur í íþróttaráði: „Þetta var bara prinsippmál“ SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Eins og löglærður forstjóri spítala væri að skera upp sjúklinga Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Eldur í ruslageymslu á Selfossi Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Ók á fimm til sex kyrrstæða bíla Næsta skref að tryggja að próf leigubílstjóra verði alfarið á íslensku Sjá meira