Tollar miða við neysluumhverfi frá 1995 8. september 2011 09:00 þorgerður katrín gunnarsdóttir
Tekist var á um tolla á landbúnaðarvörur á Alþingi í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var málshefjandi í utandagskrárumræðu og spurði hún Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þriggja spurninga: Ætlar ráðherra að breyta tollaumhverfi til samræmis við álit umboðsmanns Alþingis, ætlar hann að breyta landbúnaðarkerfinu með hliðsjón af breyttu neysluumhverfi og ætlar hann að auka innflutning á búvörum? Jón fór yfir stöðu málaflokksins, en fátt var um svör við spurningunum þremur. Þó sagði hann í seinni ræðu sinni að hann hygðist ekki setja íslenska matvælaframleiðslu í hættu með því að opna fyrir takmarkalausan innflutning. Þorgerður Katrín benti á þá staðreynd að Ísland hefði skuldbundið sig til að hleypa inn ákveðnu magni af erlendum búvörum með aðild að GATT-samningnum árið 1995. Miðað væri við 3 prósent af innanlandsframleiðslu. Kvótarnir tækju enn mið af því neysluumhverfi sem var við undirritun samninganna fyrir sextán árum. Fjölmargir þingmenn tóku þátt í umræðunni og kölluðu þau Magnús Orri Schram og Ólína Þorvarðardóttir, þingmenn Samfylkingarinnar, og Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, eftir heildstæðri endurskoðun á landbúnaðarkerfinu. Aðrir, eins og framsóknarmennirnir Höskuldur Þórhallsson og Sigurður Ingi Jóhannsson, og Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vinstri grænum, tóku undir með landbúnaðarráðherra að innlenda framleiðslu og matvælaöryggi bæri að tryggja.- kóp
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira