Setja upp hver sína hreinsistöð fyrir skolp 8. september 2011 06:00 Tveir íbúanna í Mosfellsdal sem í gær fengu nýjar hreinsistöðvar fyrir frárennsli frá húsum sínum. Fréttablaðið/Vilhelm „
Okkur finnst kominn tími til að fara að gera eitthvað því það liggur við að hér flæði skolp beint út í árnar,“ segir Jón Jóhannsson í Mosskógum í Mosfellsdal. Jón og tveir nágrannar hans hafa keypt hver sína skolphreinsistöðina til að leysa af gagnslitlar rotþrær. Jón tók í gær við sinni hreinsistöð sem sett er saman á Egilsstöðum úr elementi frá Danmörku og tanki frá Tékkalandi. Stöðin gengur fyrir rafmagni og skilur óhreinindi úr frárennslisvatninu. „Það eru vandamál á öðrum hvorum bæ með frárennsli hér í Mosfellsdal vegna þess að dalurinn er svo sléttur og vatnsstaðan há. Hér eru gamlar rotþrær sem menn hafa kannski ekki verið góðir í að setja rétt upp,“ segir Jón. Hann rekur grænmetismarkað og tjaldstæði í Mosskógum og kveðst þurfa að borga um 800 þúsund krónur sjálfur fyrir hreinsistöðina. „Þetta er það eina sem dugir og mér finnst að annað hvort ríkið eða bæjarfélagið eigi að koma að málinu og setja þetta upp alls staðar í dalnum. Annars verður frárennslið alltaf til vandræða. Árnar eru kannski fljótar að skola sig en menn fara að minnsta kosti ekki að grilla og senda börnin sín með veiðistangir niður að á þegar þau eru komin heim. Það væri nú ansi gaman ef það væri hægt – eins og var í gamla daga,“ segir Jón í Mosskógum.- gar
Mest lesið Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Fleiri fréttir Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði Sjá meira