Aðeins tveir kostir í stöðunni 10. janúar 2011 20:00
Ríkisstjórnin getur keypt HS Orku í frjálsum samningum eða tekið fyrirtækið eignarnámi með lögum. Þessar tvær leiðir eru færar að mati sérfræðings í löggjöf um orkugeirann. Tvær nefndir á vegum hins opinbera hafa fjallað um kaupin sem nú eru fullfrágengin og talið þau lögmæt. Kaup kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy á HS Orku voru fullfrágengin í desember síðastliðnum þegar gengið var frá síðustu greiðslu vegna kaupanna. Um 46 þúsund manns hafa nú skráð sig á vefsíðuna Orkuauðlindir.is og hvatt stjórnvöld til að koma í veg fyrir kaupin. Tvær nefndir á vegum hins opinbera hafa fjallað um kaupin á HS Orku og talið þau lögmæt. Annars vegar nefnd um erlenda fjárfestingu sem heimilaði kaupin og hins vegar sérstök nefnd ríkisstjórnarinnar sem sagði að viðskiptin stæðust lög og að stjórnvöld ættu ekki beina aðild að þeim. Sérstakur starfshópur ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarflokkanna um eignarhald á orkufyrirtækjum komst síðan að þeirri niðurstöðu að það væri óráð að ríkið tæki HS Orku eignarnámi, en það kom fram í drögum að niðurstöðu hópsins sem hefur þó ekki enn lokið störfum. Ketill Sigurjónsson lögfræðingur er sérfræðingur á sviði auðlindalöggjafar. Hann segir að nú séu aðeins tveir kostir í stöðinni fyrir íslensk stjórnvöld vilji þau vinda ofan af kaupunum á HS Orku og fyrirtækið verði í opinberri eigu. „Ef að ríkisstjórnin vill að ríkið eignist HS Orku þá sé ekki að hún eigi neina aðra kosti en að leggja fram frumvarp um Alþingi um eignanám á HS Orku. Ég fæ ekki séð að það sé neinn annar kostur í stöðunni nema þá náttúrulega að reyna að kaupa HS Orku í frjálslum samningum," segir Ketill. Ef ríkið ætlar að taka þetta eignarnámi þá þarf að uppfylla skilyrði um almenningsþörf auk þess sem fullt verð þarf að koma fyrir. „Mín skoðun er sú ef að HS Orka yrði tekin eignanámi þá myndi það fæla erlenda fjárfestingu frá landinu," segir Ketill.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Fleiri fréttir Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Sjá meira