Spara á 540 milljónir í skólum Reykjavíkur 20. janúar 2011 08:00 Í nýrri fjárhagsáætlun menntasviðs Reykjavíkur er gert ráð fyrir að hækka gjaldskrá mötuneyta grunnskóla borgarinnar um 10 prósent, auk þess sem í þeim verði dregið úr kostnaði. Fréttablaðið/Anton
Draga á saman um helming í starfsemi bókasafna grunnskóla Reykjavíkur og skera niður námsráðgjöf um tíu prósent, samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun menntasviðs borgarinnar. Auk þess á að lækka viðbótarstjórnendakostnað um tíu prósent, sem og kostnað vegna matráða í mötuneytum, við ritara og umsjónarmenn húsnæðis. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins nemur heildarupphæð fyrirhugaðra hagræðingaraðgerða frá rúmum 540 milljónum til tæpra 570 milljóna króna, eða sem svarar 3,9 prósentum af heildarútgjöldum Reykjavíkurborgar vegna grunnskóla. Fyrirhugaður niðurskurður var kynntur í skólaráðum grunnskólanna síðastliðinn fimmtudag. Fyrir dyrum standa síðan viðtöl menntasviðs við einstaka skólastjóra þar sem farið verður yfir hvernig þeir sjá fyrir sér að ná settum markmiðum. Endanleg útfærsla í einstökum skólum á svo að liggja fyrir hinn 15. næsta mánaðar. Heimildir blaðsins herma að líklega þurfi að koma til uppsagna í einhverjum skólum, en umfang þeirra liggi ekki fyrir. Eigi að segja upp eða gera breytingar á starfshlutfalli almennra starfsmanna þurfi það hins vegar að gerast fyrir 1. febrúar. Ef segja þarf upp kennurum þarf það að gerast fyrir 1. maí. Niðurskurðinum er skipt í þrennt, en endurskipulagning á skólastarfi á að skila yfir 100 milljóna króna sparnaði. Breytingar á innri leigu þar sem hætt yrði að nýta sem nemur 8.000 fermetrum af húsnæði eiga að skila nálægt 160 milljónum og margvíslegar hagræðingaraðgerðir sem skólastjórnendur eiga sjálfir að útfæra eiga að skila tæplega 300 milljónum. Komi allur fyrirhugaður niðurskurður til framkvæmda er ljóst að áhrif á skólastarf verða umtalsverð. Sér í lagi gætir þar áhrifa í 9,4 prósenta samdrætti í úthlutuðum kennslustundum, en það er sá rammi sem skólanum er ætlað að starfa innan til að uppfylla kröfur um lögbundinn kennslustundafjölda og bjóða upp á sveigjanlegt skólastarf. Þessar breytingar eru sagðar koma afar misjafnlega niður á skólum eftir stærð. Vitað er um dæmi þar sem niðurskurður úthlutaðra kennslustunda þýðir niðurskurð sem svarar einni til einnar og hálfrar kennarastöðu. - óká
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira