Saka fjármálafyrirtækin um villandi upplýsingar Höskuldur Kári Schram skrifar 1. september 2011 18:28
Hagsmunasamtök heimilanna saka fjármálafyrirtækin um að leggja fram villandi upplýsingar um afskriftir lána. Af rúmlega hundrað og fjörtíu milljörðum sem fjármálafyrirtækin flokka sem afskriftir eru hundrað og tuttugu tilkomnir vegna gengistryggðra lána. Samtök fjármálafyrirtækja sendu frá sér í gær yfirlit um niðurfærslu á lánum til heimila frá bankahruni. Í yfirlitinu kemur fram að rúmlega 87 þúsund lántakar hafi fengið eða leitað eftir niðurfærslu lána. Alls nemur niðurfærslan tæpum hundrað fjörutíu og fjórum milljörðum króna en þar af eru um hundrað og tuttugu milljarðar tilkomnir vegna gengistryggðra lána. Hagsmunasamtök heimilanna hafa gagnrýnt þessa framsetningu og bent á að ekki sé hægt að tala um niðurfærslu á gengistryggðum lánum þegar fyrir liggur dómur um ólögmæti þeirra. Réttast væri að tala um leiðréttingu lána. „Samtök fjármálafyrirtækja ættu að orða hlutina rétt. Fjármálafyrirtækin veittu gengistryggð lán með ólögmætum hætti, þau voru ólögleg. Þau voru því að færa í sitt eignabókhald með röngum hætti. þetta er bara leiðrétting á því. þetta er engin niðurfærsla eða afskrift," segir Andrea J. Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Samtök fjármálafyrirtækja vísa því bug að upplýsingarnar hafi verið villandi Voruð þið að reyna að blekkja almenning? „Ég held að allir sem að skoða okkar tilkynningu sjá að svo er ekki. við sundurgreinum mjög skýrt hvernig þetta skiptist. að hvaða leiti þessi skuldalækkun hefur farið fram. útaf þessari 110 prósenta leið, útaf þessari sérstöku skuldaaðlögun eða útaf þessum dómum eða lagasetningu sem sneri að gengistryggðum íbúða og bílalánum, nei ég tel svo sannanlega ljóst að við höfum ekki viljað blekkja neinn," segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Fram kemur í yfirliti samtaka fjármálafyrirtækja að rúmlega fimm þúsund hafa sótt um hundrað og tíu prósenta leiðina hjá íbúðalánasjóði. Rétt tæplega ellefu hundruð umsóknir hafa verið afgreiddar eða um 20 prósent sem er mun lægra hlutfall en hjá fjármálafyrirtækjunum. „Meginskýringuna er að finna í því að það voru sett lög sem veittu okkur lagaheimild til að fara í þessa aðgerð og þar er einfaldlega tekið fram í lögunum að við þurfum að kalla eftir verðmati fasteignasala og það er flöskuhálsinn í kerfinu og hægir á ferlinu. og til samanburðar eru bankarnir að keyra þetta í sjálfvirkum keyrslum byggðu á fasteignamati þannig að það er tiltölulega fljótgert," segir Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. Sigurður á von á því að búið verði að afgreiða allar umsóknir innan tveggja mánaða.
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira