Loka lögreglustöðinni í Búðardal 11. janúar 2011 05:30 Búðardalur. Auk fasts lögreglumanns starfa þar tveir héraðslögreglumenn.
Lögregluumdæmi Borgarfjarðar og Dala þyrfti að fá tíu til tólf milljóna króna aukafjárveitingu ef halda ætti lögregluvarðstöðinni í Búðardal áfram opinni, að sögn Theodórs Þórðarsonar, yfirlögregluþjóns í Borgarnesi. Einn lögreglumaður er starfandi á stöðinni og lögreglubíll staðsettur í Búðardal. Stöðinni verður lokað og þessi starfsemni lögð af vegna sparnaðarkröfu sem gerð hefur verið til lögreglunnar í umdæminu. „Þetta tengist fjárhagsstöðunni hjá embættinu," segir Theodór. „Þetta er ekki það sem við viljum gera heldur er okkur þröngur stakkur sniðinn." Hann segir að þótt til þessa niðurskurðar komi verði þrír héraðslögreglumenn áfram starfandi í Dölum, einn staðsettur í Saurbæ og tveir í Búðardal. „Þegar fasti lögreglumaðurinn hefur verið í fríi hafa þessir lögreglumenn farið í hans stað á vettvang. Síðan hefur eftir atvikum komið lögregla úr Borgarnesi hafi þess þurft." Theodór segir að löggæslu verði eftir sem áður stýrt með sem hagfelldustum hætti í umdæminu. Fjarskiptamiðstöð lögreglu sendi þann bíl sem næstur sé á vettvang, hvort um sé að ræða Dali eða önnur héruð.- jss
Mest lesið Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Innlent Katrín orðin stjórnarformaður Innlent Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Innlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Þrír vasaþjófar handteknir á gistiheimili Laugarneshverfi Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Sjá meira