Innlent

Árni Johnsen neitar að lúta niðurstöðunni

Ekkert verður af byggingu Þorláksbúðar segir formaður Húsafriðunarnefndar.
Ekkert verður af byggingu Þorláksbúðar segir formaður Húsafriðunarnefndar. Mynd/Pjetur
Húsafriðunarnefnd ákvað í gær að skyndifriða Skálholtsskóla, Skálholtskirkju og nánasta umhverfi. Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður nefndarinnar, segir þetta þýða að hætta verði byggingu Þorláksbúðar.

Árni Johnsen, þingmaður og formaður Þorláksbúðarfélagsins, neitar að lúta þeirri niðurstöðu. Í Síðdegisútvarpi RÚV í gær sagðist Árni furða sig á að húsafriðunarnefnd hefði ekki haft vitneskju um framkvæmdirnar í Skálholti fyrr en nú og hafnaði því að húsið skyggði á kirkjuna.- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×