Stabæk vill fá um 100 milljónir kr. fyrir Veigar Pál 12. júlí 2011 09:30 Veigar Páll Gunnarsson er enn til umfjöllunar í norskum fjölmiðlum í dag en norska meistaraliðið Rosenborg hefur sýnt honum áhuga og bendir allt til þess að Veigar verði seldur frá Stabæk á allra næstu dögum. AFP
Veigar Páll Gunnarsson er enn til umfjöllunar í norskum fjölmiðlum í dag en norska meistaraliðið Rosenborg hefur sýnt honum áhuga og bendir allt til þess að Veigar verði seldur frá Stabæk á allra næstu dögum. Samkvæmt heimildum Addressavisen er kaupverðið um 100 milljónir kr. Veigar segir að hann sé stoltur að finna fyrir áhuga frá meistaraliðinu en þjálfari liðsins, Svíinn Jan Jönsson, þjálfaði Veigar þegar Stabæk varð norskur meistari árið 2008. „Ég verð bara að bíða og sjá hvað gerist en það er að sjálfsögðu áhugavert að Rosenborg skuli sýna mér áhuga,“ segir Veigar Páll við Adresseavisen. Veigar bætir því við að hann hafi sterkar taugar til Stabæk. „Ef staðan verður sú að margir leikmenn fari frá félaginu þá mun Stabæk ekki keppa um meistaratitla á næstu árum. Ég vil vinna titla,“ sagði Veigar. Rosenborg seldi fyrir skömmu Per Ciljan Skjelbred til Hamborgar í Þýskalandi og Veigar Páll er efstur á óskalistanum hjá þjálfaranum. „Ef Rosenborg kaupir mig þá kemur það vel út fyrir alla. Stabæk fær pening fyrir mig og ég fæ tækifæri hjá nýju félagi. Ég bíð spenntur eftir því hvað gerist, liðin hafa rætt saman, en það gerist ekkert fyrr en liðin hafa náð samkomulagi,“ bætti Veigar við en fjárhagur Stabæk er ekki eins góður og á undanförnum árum. Og allt bendir til þess að félagið verði að selja bestu leikmenn sína til þess að rétta skútuna af.
Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Sjá meira