Tíu ár í endurreisn hjá millitekjufólki 7. janúar 2011 03:30 Kaupmáttur á Íslandi hefur rýrnað mikið frá hruni. Forseti ASÍ segir að áratugur geti liðið þar til kaupmáttur millitekjufólks nái sama stigi og fyrir kreppu. Fréttablaðið/Vilhelm
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), segir að áratugur geti liðið áður en kaupmáttur meðaltekjufólks nái sama stigi og á góðæristímanum fyrir hrun. Eins og fram hefur komið í fréttum blaðsins er aukinn kaupmáttur launafólks eitt helsta atriðið í nýhöfnum kjaraviðræðum ASÍ og Samtaka atvinnulífsins (SA). Í nýlegri grein á vef SA er mælt með hóflegum launahækkunum og vísað til þess að á árabilinu 2005 til 2009 hafi laun á Íslandi hækkað um 32 prósent á meðan þau hækkuðu um rúm tíu prósent að meðaltali í OECD-löndunum. Laun hafi svo haldið áfram að hækka á síðasta ári. Forsvarsmenn ASÍ vísa hins vegar til hækkunar á vísitölu neysluverðs og rýrnunar kaupmáttar hjá þorra landsmanna. Kaupmáttartölur frá ASÍ sýna með glöggum hætti ris og fall efnahagslífsins frá ársbyrjun 2005 og fram til nóvember 2010. Kaupmáttur á Íslandi hefur rýrnað mikið frá góðærinu sem náði hámarki sumarið 2007. Tölurnar hafa verið á uppleið síðustu mánuði, en kaupmáttur hefur enn ekki náð því sem hann var í janúar árið 2005. Segir Gylfi að samkvæmt skýrslu Alþjóðavinnumálastofnunar hafi launamenn sennilega hvergi í heiminum farið verr út úr hruninu en Íslendingar, hvað varðar kaupmáttarrýrnun. Það megi að mestu leyti skýra með gengishruni. „Það er því miður þekkt staðreynd að hrun krónunnar hefur þurrkað upp 15 prósent af dagvinnulaunum og því til viðbótar er svo samdráttur í atvinnu þannig að ráðstöfunartekjur heimilanna hafa minnkað um rúman fimmtung.“ Gylfi bætir því við að þótt kaupmáttur hinna launalægstu hafi verið varinn í síðustu kjarasamningum sé langt í land með að millitekjufólk nái sömu hæðum. „Það mun taka okkur áratug að endurreisa stöðu þeirra hvað varðar kaupmátt.“ Gylfi segir efnahagsumhverfið hér á landi þó geta staðið í vegi fyrir raunverulegum kjarabótum fyrir almenning. „Það er engin launung að það efnahagsumhverfi og gjaldmiðill sem byggt verður á þarf að vera eitthvað traustara en það sem tíðkast hefur hingað til svo að tryggt verði að það sem vinnist hverfi ekki aftur tíu árum seinna.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira