Innlent

Í öndunarvél eftir reiðhjólaslys á Dalvegi

Landspítalinn í Fossvogi
Landspítalinn í Fossvogi
Líðan hjólreiðamannsins sem varð fyrir gámaflutningabíl á Dalvegi á miðvikudaginn er óbreytt, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans. Maðurinn er alvarlega slasaður og er haldið sofandi í öndunarvél.

Keyrt var á manninn síðdegis á miðvikudag en samkvæmt upplýsingum fréttastofu var gámaflutningabílnum ekið gegn einstefnu inn á vinnusvæði Sorpu við Dalveg.

Áreksturinn var mjög harður og þurftu slökkviliðsmenn meðal annars að beita klippum til þess að ná reiðhjólinu af manninum en það hafði flækkst utan um hann.

Slysið er í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×